Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Frekari upplýsingar um Velgengni.is

Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki sem fyrir utan að reka vefinn www.velgengni.is, býður uppá fyrirlestra, námskeið og ráðgjöf. Þjónustan hentar bæði fyrirtækjum en með mikinn fókus á einstaklinga og fjölskyldur.

Eitt af sérgreinum okkar er fjármálanámskeið sem byggt er á námskeiði sem hefur verið í gangi allt frá 1994 og við veitum ráðgjafaþjónustu með það að markmiði að aðstoða fólk við að ná varanlegum töku á fjármálum sínum.

Auk þess að taka á fjármálum er unnið mikið með hegðun og ávana, stuðning yfir lengri tíma þannig að hámarks árangur náist.

Einnig eru ráðgjafar sem starfa með fyrirtækinu, bæði á sviði tilfinninga, hreyfingar, mataræðis, starfsgleði, starfsframa og fleiri þátta. Í boði að halda bæði námskeið, fyrirlestra og einstaklingsráðgjöf og meðferð.

Hægt er að setja saman heildarlausnir fyrir einstaklinga, sem vilja koma jafnvægi á líf sitt, bæta líðan og samskipti við þá sem þeir umgangast.

Auk þess sem fyrirtækið heldur regluleg námskeið á eigin vegum kaupa sveitarfélög námskeið fyrir notendur félagsþjónustu. Starfsendurhæfingar um land allt kaupa námskeið sem hluta af sínu úrræði, starfsmannafélög og fyrirtæki kaupa námskeið fyrir sitt fólk og svo mætti áfram telja.


Velgengni.is
Kt. 440399-3719
Síðumúla 35
108 Reykjavík
Sími 552 2600 - 867 6800
min@velgengni.is


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband