Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Að njóta velgengni í dag...

Þrátt fyrir stöðugar fréttir um hrun á fjármálamörkuðum, ógnar niðursveiflu í efnahagslífinu og jafnvel þjóðargjaldþrot,  þá er til fólk sem nýtur mikillar velgengni og heldur áfram að njóta velgengni. Hvers vegna,  vegna þess að þetta fólk heldur áfram og setur sér markmið. Það er jákvætt, sjálfsöruggt og ákveðið í að njóta velgengni, það lætur ekki atburði sem eru að gerast í kringum það trufla sig.  Þetta fólk lætur ekki utanaðkomandi aðstæður stoppa sig af.  Þetta fólk heldur áfram að vera jákvætt og leitar að nýjum og breyttum leiðum til þess að njóta velgengni og ná árangri í lífinu.

Fólk sem nýtur mikillar velgengni, trúir á sjálft sig og hæfileika sína til að njóta velgengni.  

Fólk sem nýtur mikillar velgengni er hefur mikinn styrkleika í markmiðasetningu. Það veit hvað leið það vill fara í lífinu og hefur sett upp leiðarkort um hvernig það kemst þangað. Markmiðin sem það hefur skrifað niður er þeirra leiðarvísir til velgengni.

Niðurskrifuð markmið eru mjög öflug.  Þannig skráum við niður drauma okkar.  Markmið eru vel útfærð yfirlýsing hvað þú vilt gera og áorka í lífinu --- ekki hvað þú myndir kannski vilja gera.

Markmiðasetning er ekki neitt nýtt fyrirbrigði. Það er búið að vera til í mjög langan tíma. Samt er það skrýtið að minna en 3% af fólki á niðurskrifuð markmið og minna en 1% skoðar  markmiðin sín með reglulegum hætti.

Ertu þú tilbúinn að slást í hópinn með þessum 3% og njóta velgengni?  Það er aldrei of seint að byrja. Til þess að njóta velgengni, þá þarftu að vera tilbúinn að takast á við þessi 6 atriði:

1 Þú VERÐUR að vilja  byrja og vera tilbúinn að framkvæma. Ekki kannski eða jafnvel byrja og skoða hvort þú framkvæmir.

2 Þú verður að meta hreinskilningslega stöðuna þína núna, hvert þú vilt halda og hafa skýra sýn á því hvaða niðurstöður þú vil fá. 

3 Þú verður á trúa á aðferðina og hæfileika þína til að framkvæma, þannig að þú náir þeirri útkomu sem þú óskar eftir.

4 Markmiðin þín verða að skynsamleg en ögrandi, mælanleg, framkvæmanleg, raunsæ og með dagsetningum.

5 Markmiðin þín verða að hafa skilgreinda stefnu og aðgerðarskref, til þess að þú náir þeim niðurstöðum sem þú væntir. Nýttu þér draumaborðin á velgengni.is til að setja upp markmiðin þín og fá senda áminningu til að þú skoðir reglulega yfir þau.

6 Þú verður að vera opinn fyrir því að leita þér aðstoðar, spyrja ráðgjafa, leita til annarra aðila sem hafa ná sínum markmiðum. Kynna þér gögn sem geta hjálpað þér, sótt námskeið, ráðstefnur eða hvað sem er sem færir þið að þeirri niðurstöðu sem þú óskar eftir. 

Ef þú þarft frekari upplýsingar um það hvers vegna niðurskrifuð markmið eru svona mikilvæg til að njóta velgengni. Hugleiddu þá staðreyndirnar hér fyrir neðan.  Ef þér finnst eitthvað vit í þeim leggðu þá af stað ákveðnum skrefum, ef ekki þá mun lífið þitt verða áfram eins og það er og tíminn renna hjá.
Svo ef það er velgengni sem þú ert að leita eftir, þá er leyndarmálið einfalt.  Lestu áfram—

Fimm þrautreyndar ástæður þess að þú ættir að hafa niðurskrifuð markmið í lífi þínu:

1. Niðurskrifuð markmið hámarka möguleika þína í að njóta velgengni.  Arkitekt gerir teikningar þegar hann er að hanna hús, flugstjóri gerir flugplan til að komast á áfangastað. Leikstjóri notar handrit þegar hann tekur upp kvikmynd.  Hvers vegna?  Teikning, flugplan og handrit eru leiðarvísir þessa fólks, svo það nái þeim árangri sem það óskar.  Það sama á við um niðurskrifuð markmið. Þau eru leiðarvísir þinn til velgengni.

2. Niðurskrifuð markmið auka og viðhalda hvatningu til að ná þeim.  Þegar þú veist hvaða niðurstöðu þú vilt fá og hvaða leið þú ert á, þá getur þú mælt árangurinn og hvernig þér miðar. Þegar þú byrjar að upplifa jákvæðan árangur og fyllir það þig af krafti og eldmóði til að halda áfram.  Eitt sem er mjög mikilvægt,  verðlaunaðu þig við hvert markmið sem þú nærð, það eykun enn frekar á hvatningu þína í að halda áfram.  Að verðlauna sjálfan sig, veitir þér vellíðan.  Þegar þér líður vel, þá langar þig að gera meira.

3. Niðurskrifuð markmið auka sjálfstraust.  Þegar þú leggur af stað og byrjar að ná árangri og njóta velgengni og verðlauna þig, þá eykst sjálfstraust þitt ótrúlega mikið. Þú ferð að hafa trú á sjálfum þér og möguleikum þínum til að ná markmiðum þínum og draumum. Sjálfsöryggi þitt eykst. Samhliða því mun framkvæmdagleði þín aukast, sem eykur  trú þína á sjálfum þér og þú verður öruggari í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur.  Þú ferð síðan ómeðvitað að fara að framkvæma hluti til að ná markmiðum þínum, þar sem þú ert búinn að ná að þjálfa þessa nýju hegðun og hugsunargang.

4. Niðurskrifuð markmið skýra fyrir þér tilgang lífs þíns. Með niðurskrifuð markmið, áætlun og aðgerðarplan sem varða leiðina að því marki sem þú settir þér, þá veistu nákvæmlega hvað það er sem þú þarft að gera til að ná þeim niðurstöðum sem þú leitar að. Það er kristaltært.  Þú hefur sýn og  hefur skýrari fókus og drifkraft. Þú hættir  að sóa tíma, peningum og kröftum í óþarfa.

5. Niðurskrifuð markmið færa þig stöðugt í átt að markmiðum þínum. Að skrifa niður markmiðin þín, er eins og að þú gefir þeim segulmagnaðankraft. Eins og segull, þá mun skrifuðu marmiðin þín draga þig í áttina að því að upplifa draumana þína. Það er ekkert sem stoppar þig núna!

Markmiðasetning er öflug tækni. Það býr til jákvæðar niðurstöður í öllum þáttum lífs þíns. Ef þú ert með niðurskrifuð markmið, skoðaðu þau á hverjum degi. Byrjaðu núna strax í dag! Ef þig vantar aðstoð, sendu ráðgjöfum okkar fyrirspurn á min@velgengni.is .

„ Fólk með markmið gengur vel, því það veit hvað það vill fá í lífinu. Það hefur skýra sýn og fókus.“
Earl Nightingale. 
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband