Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Dýrmæt gjöf

Í dag, staldraðu við, sestu niður í næði með opin augun og finndu hjartað þitt, hlustaðu á hjartsláttinn.

Sjáðu nú fyrir þér þann sem þér þykir vænst um og skiptir þig mestu máli í lífinu. Upplifðu tilfinninguna sem þú finnur, leyfðu þér að dvelja með henni um stund. Það er í lagi að leyfa tárunum að renna ef þér líður þannig, þau geta komið hvort sem þú upplifir gleði, söknuð eða sorg.

Skrifaðu nú niður á blað nafnið á viðkomandi og alla þá jákvæðu eiginleika sem þú sérð í henni/honum, sem hjartað þitt í einlægni segir þér. Láttu það bara fljóta eins og það birtist með þínum orðum og skrifaðu nafnið þitt undir.

Næst þegar þú hittir viðkomandi, hvort sem það er í dag eða síðar. Byrjaðu á að finna hjartað þitt, hlustaðu á hjartsláttinn þinn, réttu síðan viðkomandi blaðið og deildu með honum eða henni þessari dýrmætu gjöf.
 

Njóttu velgengni í dag 
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband