Slepptu stjórn til að ná stjórn
Ef þú ert með mikilvægt markmið sem þú hefur átt erfitt með að ná, kannski er kominn tími til að þú fáir hjálp frá einhverjum. Pýramitarnir voru ekki byggðir á einni manneskju. Það þarf teymi. Það þarf aðstoð.
En það er erfitt að sleppa stjórninni. Eða frekar það er erfitt að sleppa ímyndaðri stjórn.
Ef þér er ekkert að ganga, enginn framför með stóru markmiðin í lífinu ( léttast, vera í formi, komast úr greiðsluerfiðleikum, betra skipulag, o.s.frv.) þá ert þú ekki að stjórna.
Fæði er undir stjórn. Aðgerðarleysi er undir stjórn. Peningar eru undir stjórn. Óregla er undir stjórn.
Með því að láta eftir eða deila stjórn með einhverjum öðrum, þá ertu á fá stjórn. Ekki algjöra stjórn, en 50% stjórn. Það er meira en 0% stjórn.
Ertu tilbúinn að samþykkja 50% af einhverju raunverulegu heldur en 100% af blekkingu? Að biðja um hjálp er ekki að missa stjórn, það er að taka stjórn.
Þá er það spurningin – hver getur hjálpað mér? Hverjum get ég treyst til að taka stjórnina með mér? Hver mun hafa áhuga og hag af því að hjálpa mér að ná markmiðum mínum?
Góð spurning! Ein af bestu leiðunum er að fá hjálp frá lífsþjálfara. Að vinna með lífsþjálfara sem hjálpar þér að ná markmiðum þínum, setja þér markmið og fá það sem þig langar í lífinu.
Hvers vegna að vinna með lífsþjálfara?
Lífsþjálfun er fagleg samvinna milli þín og hæfs þjálfara sem kemur þér áfram til að ná árangri og ná markmiðum sem þú hefur sett þér. Þegar þú ert algjörlega ákveðinn í lífa lífinu sem þú óskar, þá aðstoðar og hvetur þjálfarinn þig til að feta leiðina sem uppfyllir óskina. Það lætur þig aftur við stjórnina á lífi þínu. Með því að vinna með lífsþjálfa, þá munt þú upplifa nýja virðingu fyrir persónulegri áskorun. Ákvörðunartaka verður auðveldari, þér mun ganga betur í samskiptum, og þú munt finna að þú hefur meira sjálfstraust í einkalífinu og vinnunni.
„ Ekki spyrja sjálfan þig hvað heimurinn þarf. Spurðu sjálfan þig hvað mun vekja þig til lífsins og farðu síðan og gerðu það. Vegna þess að heimurinn þarfnast fólks sem er lifandi og skapandi.“
Howard Thurman.