7 leiðir til að bjarga hjónabandinu þínu
Er vandamál í hjónabandinu?
Fyrsta spurningin sem þú verður að svara er: “ Vilt þú bjarga þessu hjónabandi eða viltu slíta því?” Ef svarið er að þú vilt bjarga því, þá er þessi grein fyrir þig.
Eftirfarandi 7 leiðir eða valkostir geta mögulega breytt stefnunni sem hjónabandið þitt er í.
1. Vertu hreinskilinn við sjálfan þig varðandi grundvallar tilganginn. Hvaða flokki tilheyrir þú – tilhneigingunni til að vernda eða til að læra?
a. Er aðal tilgangur þinn að vernda sjálfan þig frá því sem þú óttast með einhverjum formi af stjórnunarhegðun eins og reiði, skömmum, gagnrýni, skort á ást, hótunum, kvörtunum eða mótstöðu? Er að hafa vald yfir maka þínum og vinning meira áriðandi fyrir þig heldur en að vera elskulegur við sjálfan þig og maka þinn? Gerir þú maka þinn ábyrgan fyrir tilfinningum þínum? Ertu meira að sækjast eftir því að fá ást og forðast höfnun heldur en að sýna gagnkvæma, umhyggjusama og einlæga ást?
b. Er aðal tilgangur þinn að læra hvernig þú getur elskað sjálfan þig og maka þinn? Ertu meira fyrir gagnkvæma, umhyggjusama og einlæga ást heldur en að hafa rétt fyrir þér, hafa vinninginn, hafa hlutina eftir þínu höfði eða gera maka þinn ábyrgan fyrir tilfinningum þínum? Er það að læra og vita meira frekar áríðandi fyrir þig heldur en hvort þú færð viðurkenningu eða ekki?
Grunnurinn af öllum hinum reglunum er að hafa einlægan áhuga á að læra hvernig þú getur elskað sjálfan þig og aðra. Ef aðal tilgangur þinn er að venda sjálfan þig frá sársauka og höfnun með stjórnandi hegðun, þá munt þú ekki hafa neinn möguleika á að bæta sambandið. Þú munt halda áfram að búa til vandamálin sem þú ert að reyna að forðast með stjórnunar hegðuninni.
2. Slepptu fortíðinni. Að halda í gömul gremjuefni er hluti af þeirri tilheigingu að vernda sig – kenna maka þinum um sársauka þinn frekar en að taka ábyrgð á þeim valkostum sem þú tókst og var upphafið að óhamingju þinni.
3. Losna við ágreining um leið og annar aðilinn er ekki tilbúinn til að læra. Það er enginn tilgangur í því að reyna að ræða um vandamál og útkomur, fyrr en báðir aðilar eru tilbúnir til að læra. Ef þú er tilbúinn en maki þinn ekki, hættu þá að reyna að leysa vandamálin með því að ræða um þau og finndu einhliða út hvernig þú getur hugsað betur um sjálfan þig, þannig að maki þinn taki eftir því.
4. Hafðu augun á eigin diski, láttu það snúast um þig og þinn eigin lærdóm. Hættu að skilgreina og útskýra maka þinn. Hættu ítarlegum spurningum sem virkilega eru árás. Þessi hegðun er stjórnun og innrás. Þín vinna er að skilgreina sjálfan þig, ekki maka þinn! Því meir sem þú skilgreinir þinn innri styrk og sleppir að skilgreina maka þinn, því betra mun sambandið þitt verða.
5. Leggðu vinnu í innri tengsl til að ná tökum á atriðum eins og niðurlægingu og skömm og skilgreindu þína kjarnaeiginleika og styrkleika. Frekar en að gera maka þinn ábyrgan fyrir ótta þinn við niðurlægingu og ótta þinn við að tapa sjálfum þér. Settu vinnu í innri heilun til að komast yfir þennann ótta. Taktu 100% ábyrgð á þessum ótta frekar en að gera maka þinn ábyrgan fyrir að valda þér þeim.
6. Viðurkenndu vanmátt þinn í að stjórna annarri persónu, veldu frekar að sjá maka þinn eins og hann eða hún er í eigin persónu. Lærðu að þykja vænt um skoðunarmuninn, frekar en að reyna að breyta maka þínum í þig. Aðstoðaðu frekar maka þinn til að vera það sem hann eða hún kom hingað á jörðin til að vera. Styddu maka þinn í því sem færir honum eða henni gleði, taktu með ábyrgð á þeim ótta sem maki þinn deilir með þér.
7. Hafðu umhyggju og góðvild fyrir þér og öðrum sem leiðarljós þitt, jafnvel þegar þú finnur fyrir ótta.
Einu sinni enn, ef þú ert fastur í hugsuninni af verndun og stjórnun, þá munt þú ekki geta valið þessa kosti. Ásetningur þinn til að læra er í grunnin að vera fær um að geta valið þessa kosti og bæta sambandið. Þú ert við stjórnvölinn á tilgangi þínum og þú hefur alltaf val um að láta af verndun/stjórnun og velja að læra að elska sjálfan þig og maka þinn.