Síðasti fyrirlesturinn
Þegar Randy Pausch, 46 ára prófessor í tölvunarfræðum við Carnegie Mellon háskóla, var beðinn að tala um faglega vegferð sína hafði hann nýlega fengið að vita að hann ætti aðeins fáa mánuði ólifaða. Útkoman var Síðasti fyrirlesturinn, sem fjallar um mikilvægi þess að stefna að ákveðnu marki. Unditektirnar voru slíkar að ákveðið var að gefa fyrirlesturinn út á bók sem farið hefur sem eldur í sinu um heiminn og hvarvetna hlotið gríðarlegar vinsældir.
Í bandarískum háskólum eru kennarar stundum beðnir að koma fram og velta fyrir sér starfslokunum undir yfirskriftinni „Síðasti fyrirlesturinn“. Hvaða visku vilum við miðla áleiðis ef við vissum að nú væri hinsta tækifærið til þess? Ef við ættum að hverfa á morgun, hvað vildum við skilja eftir okkur? Randy Pausch var hugsað til hefðarinnar um „Síðasta fyrirlesturinn“ og ákvað að fjalla um lífsferil sinn undir þeirri yfirskrift. Hann hafði frá barnæsku átt sér ótrúlega merkingarþrungna drauma sem hann hafði alltaf að leiðarljósi.
„Þrátt fyrir krabbameinið taldi ég mig lukkunnar pamfíl af því að ég hafði lifað þessa drauma. Ég hafði látið þá rætast að miklu leyti vegna þeirrar leiðsagnar sem alls konar dásamlegt fólk veitti mér á lífsleiðinni. Ef ég gæti sagt sögu mína af þeirri ástríðu sem kraumaði í mér gæti fyrirlesturinn orðið öðrum leið til að láta draumana rætast.“
Þetta er bók sem mun verða lesin kynslóð fram af kynslóð vegna hinna uppörvandi skilaboða sem sett eru fram af einstökum húmor, visku og skilningi á mannlegu eðli.
Randy Pausch sem lést s.l. sumar var útnefndur af Time magazine sem einn af 100 áhrifamestu einstaklingum heims árið 2008.
Sjá meira um bókina og höfundinn hér: http://www.thelastlecture.com/
Fyrirlesturinn http://www.youtube.com/watch?v=ji5_MqicxSo
Höfundur: Randy Pausch með aðstoð Jeffrey Zaslow
Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir
Tilboðsverð 2.192
Almennt verð 2.990
Sendingagjald ekki innifalið í verði.
Til að kaupa smelltu hér. http://www.velgengni.is/Item.aspx?ItemID=49