Að hafa trú á sjálfum sér.
Að hafa trú á sjálfum sér er val. Það er viðhorf sem þú framkallar með tímanum. Það hjálpar ef þú hefur átt jákvæða og styðjandi foreldra, en staðreyndin er samt að flest okkar hafa alist upp við að foreldrarnir hafa óviljandi látið ganga áfram til okkar sömu takmörkuðu hugmyndirnar og neikvæðu aðstæðurnar sem þau ólust upp við.
En mundu að það liðna er liðið. Þú munt ekki hagnast neitt á því að kenna þeim um stöðu þína, hvernig sjálfsöryggi þitt er. Það er nú á þína ábyrgð að gera breytingar á þínum eigin hugsunum og skoðunum. Þú verður að velja að trúa því að þú getir gert allt sem hugur þinn girnist – algjörlega allt – vegna þess að staðreyndin er að þú getur það. Það gæti hjálpað þér að hafa þá vitneskju að seinustu rannsóknir á huganum gefa til kynna að með því að tala reglulega jákvætt við sjálfan sig, með því að hugsa jákvætt og með stöðugri þjálfun, leiðbeiningum og áminningum, þá geta allir lært að gera næstum hvað sem er. Af þeim hundruðum aðila sem ég hef talað við þegar ég var að skrifa þessa og aðrar bækur, næstum allir sögðu við mig, „ Ég var ekki gáfaðasti, eða hæfileikaríkasta persónan í mínum hóp, en ég tók þá ákvörðun að trúa því að ég gæti allt, að allt væri mögulegt. Ég lærði, æfði mig og lagði meira á mig en aðrir í kringum mig og það er ástæðan fyrir því að ég komst þangað sem ég ætlaði mér“. Ef venjulegur 20 ára strákur frá Texas getur rifið sig upp og orðið Olmpiuverðlaunahafi, aðili sem hætti í menntaskóla gat orðið miljónamæringur, nemandi með lesblindu sem féll þrisvar sinnum í lokaprófi varð metsölu rithöfundur og sjónvarpsþáttaframleiðandi, ef þau gátu það þá getur þú það líka. Þú getur afrekað allt, ef þú einfaldlega trúir að það sé mögulegt.
Ef þú tekur ákvörðun um að hafa trú á sjálfum þér og hegðar þér þannig að allt sé mögulegt, þá munt þú gera þá hluti sem eru nauðsynlegir til að ná þeim árangri. Ef þú trúir að það sé ekki mögulegt, þá munt þú ekki gera það sem er nauðsynlegt og þú munt ekki ná þeim árangri sem þú vilt. Það er líka nokkuð öruggt.
VALIÐ UM HVERJU ÞÚ VILT TRÚA ER ÞITT. TRÚÐU ÞVÍ Á SJÁLFAN ÞIG, ÞÚ GETUR ALLT SEM ÞIG LANGAR TIL AÐ GERA.
Úr bókinni „The Success Principles“ eftir Jack Canfield, birt með leyfi höfundar.