Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Einkaráðgjöf í greiðsluerfiðleikum

Ef þú ert í þeirri stöðu að vita ekki hvað skref þú átt næst að stíga í fjármálum, þá gæti lausnin verið að fá stuðning hjá ráðgjöfum okkar til að finna lausnina sem hentar þér.  Það er hægt að finna lausn á öllum fjármálavanda og lausnin er stundum nær en við höldum.

Þegar erfiðleikar steðja að, vonleysi og ótti ná heljar tökum á manni, þá er oft erfitt að sjá lausnir eða einfaldlega að leggja af stað og leita að hjálp.

Ráðgjöf. Til að fá lausn á þínum vanda þá getur þú sent okkur tölvupóst á min@velgengni.is og pantað tíma hjá ráðgjafa. Ráðgjafatími kostar 6.900 kr.  mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við ráðgjafatíma.

Námskeiðið “Úr skuldum í jafnvægi” er  ætlað fjölskyldum og einstaklingum sem hafa hug á að endurskipuleggja fjárhaginn.

Námskeiðið er byggt á hugmyndafræðinni: Leiðin til velgengni. Þar er fjallað um hvað hver og einn þarf að tileinka sér í hugsun og hegðun til að fjármál séu í lagi. Fjallað er um hvernig bágri stöðu er komið í jafnvægi og hvernig vaxa má þaðan.

Fjallað eru um helstu hindranir og vinnuaðferðir til að ná árangri.

Um er að ræða hópnámskeið þar sem hópurinn hittist einu sinni í viku í fimm vikur. Tveir og hálfur klukkutími í senn.

Úttekt sem Félagsvísindastofnun Háskólans gerði á námskeiðinu, þá kom m.a. fram:

Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar er hægt að svara rannsóknarspurningunni hvort námskeiðið “Leiðin til velgengni” skili bættum fjárhag játandi. Fjárhagur batnar, langtíma- og skammtímaskuldir minnka, fólk notar síður greiðslukort og verður almennt færara um að taka á fjármálum sínum og neyslu.
Í lok námskeiðs hefur þátttakandi öðlast skilning á eðli fjármálavandans og hvað þarf að gera til að ráða bót á honum. Sumir verða búnir að leysa vandann. Aðrir verða komnir með skýra aðgerðaráætlun sem unnið verður eftir. Flestir verða sjálfbjarga að loknu námskeiði en sumir þurfa áframhaldandi stuðning.

Pantaðu tíma eða sendu okkur fyrirspurn á min@velgengni.is.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband