Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Fjármálanámskeiðin að byrja

Okkar vinsælu fjármálanámskeið Úr skuldum í jafnvægi - Leiðin til velgengni, eru að byrja núna í september.  Nú þegar er orðið mikið bókað á fyrstu námskeiðin.  Athugið að mörg verkalýðsfélög taka þátt í námskeiðskostnaði og jafnvel niðurgreiðslu á einkatímum í tengslum við námskeiðin. 

Dagsetningar eru eftirfarandi:

Reykjavík:

1. námskeið mánudaga 7. - 14. - 21. - 28. september  5. október kl 10:00

2. námskeið fimmtudaga 10.-17.-24. september 1.- 8. október kl 17:00

3. námskeið fimmtudaga 17.-24. september, 1.- 8.- 15. október kl 20:00

4. námskeið miðvikudaga 30. september, 7.- 14.- 21.- 28 október kl 13:00

Hvert námskeið er í 5 vikur 2,5 tími í senn, öll námskeiðsgögn eru innifalin.

Verð á námskeiðinu er 22.900 krónur, mörg verkalýðsfélög taka þátt í kostnaði við námskeiðin. Hjón greiða eitt gjald.

Verð fyrir notendur Velgengni.is er 19.900 krónur.

Til að panta sendið tölvupóst á min@velgengni.is

Kynning á námskeiðinu:
 

Leiðin til velgengni

Úr skuldum í jafnvægi

Námskeið ætlað fjölskyldum og einstaklingum sem hafa hug á að endurskipuleggja fjárhaginn.

Námskeiðið er byggt á hugmyndafræðinni: Leiðin til velgengni. Þar er fjallað um hvað hver og einn þarf að tileinka sér í hugsun og hegðun til að fjármál séu í lagi. Fjallað er um hvernig bágri stöðu er komið í jafnvægi og hvernig vaxa má þaðan.

Fjallað eru um helstu hindranir og vinnuaðferðir til að ná árangri.

Um er að ræða hópnámskeið þar sem hópurinn hittist einu sinni í viku í fimm vikur. Tveir og hálfur klukkutími í senn.

Heimaverkefni þar sem hver og einn vinnur með sín fjármál.


 Á námskeiðum lærir þátttakandi vinnuaðferðir til að bæta fjárhagsstöðu sína.

 Hann öðlast skilning á hvað sá hefur tileinkað sér sem nýtur velgengni í fjármálum.

 Hann öðlast skilning á hverju hann þarf sjálfur að breyta til að öðlast velgengni.

 Í einkatímum eru er vandinn fundinn, möguleg lausn og aðgerðaráætlun gerð.

 Á meðan unnið er að lausn er veittur margþættur stuðningur eftir þörfum hvers og eins.
Í lok námskeiðs hefur þátttakandi öðlast skilning á eðli fjármálavandans og hvað þarf að gera til að ráða bót á honum. Sumir verða búnir að leysa vandann. Aðrir verða komnir með skýra aðgerðaráætlun sem unnið verður eftir. Flestir verða sjálfbjarga að loknu námskeiði en sumir þurfa áframhaldandi stuðning.
 

Í úttekt sem Félagsvísindastofnun Háskólans gerði á námskeiðinu, þá kom m.a. fram:

Hlutfall þeirra sem lýsa miklum eða mjög miklum einkennum kvíða farið úr 69.7% fyrir námskeið niður í 28,5% eftir námskeið og í dag niður I 16,7% þátttakenda; það er ekki fjarri hlutfalli þeirra sem almennt þjást af kvíðaeinkennum í samfelaginu hverju sinni.
Hlutfall þeirra sem lýsa miklum eða mjög miklum einkennum depurðar hefur farið úr 65,1% fyrir námskeið niður í 28,6% eftir námskeið og í dag 16,6% þátttakenda.
Hlutfall þeirra sem lýsa miklum eða mjög miklum einkennum þunglyndis hefur farið úr því að vera 64,3% fyrir námskeið og í dag í 19% þátttakenda
Af þessu má draga þá ályktun að langtímaáhrif gæti af þátttöku í slíku námskeiði.
 
Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar er hægt að svara rannsóknarspurningunni um það hvort fjármálanámskeiðið “Leiðin til velgengni” Úr skuldum í jafnvægi” skili bættum fjárhag játandi. Fjárhagur batnar langtíma- og skammtímaskuldir minnka, fólk notar síður greiðslukort og verður almennt færara um að taka á fjármálum sínum og neyslu. Færri þurfa á fjárhagsaðstoð Félagsþjónustunnar að halda eftir námskeið. Þrátt fyrir að þátttakendur eigi enn við nokkurn fjárhagsvanda að stríða að námskeiði loknu hefur andlega liðan þess batnað til muna við að sækja námskeiðið. Viðhorf þátttakenda gagnvart námskeiðinu voru mjög jákvæð, það sýndu bæði eldri viðhorfskannanir og þessi rannsókn.


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband