Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Notaðu myndir til að hjálpa þér við að ná markmiðum þínum

Ef þú átt í erfiðleikum með að sjá fyrir þér markmið þín, notaðu þá myndir til að minna þig á , það hjálpar þér og undirmeðvitundinni að halda fókus á markmiðin.
Ef til dæmis eitt af markmiðum þínum er að eignast nýjan Lexus LS-430, taktu þá myndavél og farðu á sölustað Lexus og láttu taka mynd af þér við stýrið á draumabílnum þínum.
Ef markmiðið þitt er að ferðast til Parísar,  finndu þá mynd af Eiffel turninum og klipptu síðan út mynd af þér og settu inná myndina þannig að það sé eins og þú standi við Eiffelturninn, eins og að myndin hafi verið tekin af þér í París.  Fyrir nokkrum árum þá gerði ég þetta við mynd af óperuhúsinu í Sydney, ári seinna þá var ég í Sydney Ástralíu, standandi fyrir framan óperuhúsið.
Ef markmið þitt er að verða miljónamæringur, þá gætir þú skrifað sjálfum þér ávísun að upphæð 100.000.000 kr, eða þú gætir lagfært bankayfirlitið þitt þannig að það sýndi bankainnistæðu uppá 100.000.000 kr, eða þá upphæð sem þú óskar þér.
Mark Victor og ég (Jack Canfield) bjuggum til ímyndaðan lista frá New York Times af söluhæstu bókunum, þar settum við Chicken Soup for the Soul bókina í efsta sætið. Innan 15 mánaða þá rættist draumurinn.  Fjórum árum seinna þá vorum við skráðir í Guinnes world record, fyrir að hafa fyrstir náð því að vera með sjö bækur saman á lista New York Times yfir söluhæstu bækurnar.
Þegar þú ert búinn að útbúa þessar myndir, þá getur þú sett þær upp (innskot velgengni.is, sett þær upp í draumaborðunum á velgengni.is og láttu kerfið senda þér áminningu daglega) skoðaðu þær daglega það virkar best og heldur þér við efnið.
Þegar NASA var að vinna að því að senda mann til tunglsins, þá  voru þeir með risa mynd af tunglinu sem fyllti út í allan vegginn alveg frá gólfi uppí loft.  Öllum var ljóst hvert markmiðið var og þeir náðu því 2 árum á undan áætlun.

Úr bókinni The Success Principles , eftir Jack Canfield birt með leyfi höfundar.


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband