Stendurðu enn í stað, þrátt fyrir að hafa reynt allt?
“’Eg æfi oftast reglulega og reyni að passa hvað ég set ofan í mig. Þrátt fyrir það gerist ekkert á vigtinni, hvað er ég að gera rangt” Kannastu við þessa spurningu?
Við höfum sennilega öll heyrt og séð auglýsingar sem lofa rosalegum árangri á ótrúlega stuttum tíma. ‘Eg held að ég geti skotið fram þeirri fullyrðingu hér og nú að þær eru allar falskar! En jafnvel þó að við efumst um að við getum náð þessum gríðarlega árangri þá eru margir sem freistast til að versla vörurnar sem þetta eiga að gera en enda oftast nokkrum þúsundköllum fátækari og ekki grammi léttari Auglýsingar af þessu tagi hafa fyllt okkur flest af ranghugmyndum um það hversu hratt við getum verið að missa aukakílóin og ef árangurinn er ekki eins og í auglýsingunum eru flestir ekki ánægðir. Þetta verður til þess að fólk setur sér of háleit markmið í byrjun og í engum takti við það sem eðlilegt er að missa, árangurinn er minna sjálfstraust og vanlíðan. Næsta skref er oftast að finna næstu undralausnina til að missa aukakílóin sem mun fara alveg eins.
Um höfundinn:
Björn Þór Sigurbjörnsson hefur áralanga reynslu og góða þekkingu á öllu því sem kann að tengjast líkamsrækt. Björn hefur haldið fyrirlestra um efni tengd líkamsrækt og hugarfari. Björn Þór er einkaþálfari og næringaráðgjafi í Sporthúsinu Kópavogi.
Viljir þú hafa samband við Björn sendu honum þá póst
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar,senda fyrirspurn eða til að panta.