Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Er sársauki góður?

Sársauki er öflugur kostur á marga vegu. Það er leið náttúrunnar til að segja okkur að eitthvað þurfi athygli okkar og hvatning til að gera eitthvað í málinu.  Til dæmis, ef þú brennir fingurinn, þá segir sársaukinn þér að fjarlæga fingurinn frá staðnum sem er að brenna hann.  Án sársaukans myndum við fljótt valda okkur líkamlegu tjóni, sem gætu haft alvarlegar afleiðingar.

Sársauki getur líka verið mikill kostur í andlegri vanlíðan. Hann er talinn eitt öflugasta verkfæri til að fá okkur til að taka á sínum málum, koma hreyfingu á hlutina. Vanlíðan og erfiðleikar eru oft upphafið af velgengni viðkomandi. En einmitt þegar þú kemur á þann stað að sársaukinn er óbærilegur, þá neyðist þú til að gera breytingar á lífi þínu, hvað sem það kostar og þá fyrst er  leiðin uppá við.

Lífið snýst um valkosti. Við veljum hvernig við bregðumst við mismunandi aðstæðum. Margir sem eru í vanlíðan, hvort sem hún er vegna fjölskyldunnar, vinnu, fjármála, eða af öðrum örsökum, leitast við að afneita vanlíðaninni og fela fyrir öðrum hvernig líðanin er, jafnvel deyfa vanlíðanina með áfengi, ofneyslu á mat eða með öðrum hætti. Þessu fylgir of orkuleysi og vanmáttur til að taka á hlutunum. En eini valkosturinn er: Taktu af skarið og taktu á þínum málum, það er erfitt að taka fyrsta skrefið, en leiðin liggur fljótt uppá við.
 Vertu ákveðinn að þú ætlar ekki að taka tímabundin skref, til að líða bara aðeins betur núna.Skilgreindu og skoðaðu af hreinskilni hvað það er sem var að valda vanlíðan hjá þér. Lærðu af mistökum þínum, nýttu þér reynsluna sem þú hefur til að vaxa og ná toppinum og upplífa draumana þína og njóta velgengni í lífinu.

Ég hef oft tekið eftir að þeir sem njóta mikillar persónulegrar velgengni hafa áður gengið í gegnum hrikalega mikla erfiðleika jafnvel í langan tíma. En svona er lífið.  Það vill legga erfiðar þrautir fyrir okkur til að sjá hvort við séum tilbúin að taka á þeim og leggja eitthvað á okkur til að ná árangri. Eins og sverðið sem er stungið í eldinn og slegið til og meðhöndlað á hrottafenginn hátt, leiðir lífið okkur ég gegnum erfiðar áskoranir, sem við þurfum að takast á við og leysa.

Svo mundu að næstum allir erfiðleikar sem við þurfum að takast á er tækifæri til að þroskast og ná lengra í lífinu.  Þær erfiðu áskoranir sem við þurfum að takast á við, eru oft fyrstu skrefin að velgengni okkar, án þeirra hefðir þú ekki sett þér markmið til að upplifa draumana þína. Nú er tækifæri til að endurmeta stöðu þína.  Taktu strax með festu á hlutunum og farðu að lifa jákvæðu og hamingjuríku lífi. Settu niður fyrir þér markmið þína og drauma. Nýttu þér verkfærin sem eru í draumaborðunum til að setja skilmerkilega upp markmiðin þín og senda þér stöðuga áminningu, það hjálpar þér að varða leiðina til árangurs. Byrjaðu á láta draumana rætast strax í dag.

Njóttu velgengni.


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband