Farsæl sambönd, ekki bara heppni
Pör sem eru í góð sambandi eru ekki bara heppin. Farsæl og ástrík sambönd verða ekki bara af ástæðulausu. Pör sem eru í ástríku og hamingjusömu sambandi eru að gera ákveðna hluti sem pör í misheppnuðum samböndum eru ekki að gera.
Leið 1 – Góðvild/vinsemd til þín og annarra
Hugleiddu stundarkorn hvernig þú ferð í gegnum daginn. Ertu stöðugt að skoða hvað þér líkar ekki í fari þínu eða maka þíns? Eyðir þú mestum tíma í að dæma sjálfan þig eða maka þinn? Eða setur þú efst í forgangsröðunina að hugsa með hlýum huga til þín og annara, sérstaklega þín og makans?
Fólk í farsælum samböndum umvefur sjálft sig og maka sinn með kærleika, vingjarnlegum orðum, tillitsömum aðgerðum, vinsamlegu áhorfi, eru góðir hlustendur og hugsa kærleiksríkar hugsanir. Það er þeim mun meira áríðandi að vera vingjarnleg, heldur en að reyna að stjórna maka sínum með reiði, dómum, gagnríni, geðvonsku, skömmum, andstöðu eða flótta.
Leið 2 – Ábyrgð á eigin tilfinningum
Fólk í kærleiksríkum samböndum gerir ekki maka sína ábyrga fyrir tilfinningum sínum. Þegar það er reitt, sært, kvíðið, dapurt, gramt, ergilegt, með sektarkennd eða skömmustulegt, skoðar það með sjálfu sér eigin hugsanir og hegðun sem valda því að þeim líður svona. Þau líta ekki á sig sem fórnarlamb maka sinna. Þegar þetta fólk ræður ekki við að ná tökum á eigin tilfinnigum, þá leitar það þeirrar hjálpar sem það þarf, frekar en að hella reiði, skömmum, kvíða eða depurð yfir maka sína eða aðra.
Leið 3 – Skipulagning með ábyrgð
Fólk í góðum kærleiksríkum samböndum skipuleggur tíma sinn þannig að það henti bæði þeim sjálfum og maka þeirra. Þau gera ráð fyrir því að hafa nægan tíma saman, til þess að tala saman, læra saman, leysa úr árgreiningsmálum, skemmta sér saman og njóta ásta. Þau gera ráð fyrir að hafa tíma með börnunum, tíma fyrir húsverkin, tíma fyrir vinnu og til þess að slappa af. Þau taka tillit til gagnkvæmra þarfa og virða þarfir maka síns. Ef annar aðilinn á tilhneigingu til þess að vera snyrtilegur en hinn leggur ekki eins mikið upp úr því, þá kappkosta þeir að hafa heimilið sitt þannig að það henti báðum aðilum, frekar en að annar sé sífellt að kvarta, stjórna eða streitast á móti. Vegna þess að mikilvægast atriðið er kærleikur til sín sjálfs og hvors annars, hvatningin er að uppgötva leiðir sem uppfylla þarfir beggja.
Leið 4 – Fjárhagsleg ábyrgð.
Pör í góðum samböndum tryggja að þau afli ekki einungis nægjanlegra tekna til að halda sér uppi, þau læra líka að nota fjármuni sína þannig að það valdi ekki streitu fyrir sig og maka sinn. Þau ákveða sameiginlega hvort þau eigi bæði að vera í starfi eða ekki. Pör í ástríkum samböndum ákveða ekki einhliða að hætta að vinna og byrja að lifa á hinum aðilanum. Né ákveður hvor aðili um sig einhliða fjárhagslega ákvörðun sem hefur neikvæð áhrif á hinn aðilann.
Í hamingjusömum samböndum eyðir ekki annar aðilinn fjármunum í því mæli að það valdi kvíða eða ótta hjá hinum aðilanum. Í góðum samböndum gerir fólk sameiginlega fjárhagsáætlun og báðir aðilar halda sig innan hennar.
Leið 5 – Heilsa og velferð
Þegar tveir aðilar sem þykir mjög vænt um hvort annað, kappkosta þau að því að hugsa vel um líkamlega heilsu. Ástfangin pör hegða sér ekki þannig að það veki ótta hjá hvorum aðila um sig varðandi velferð þeirra. Þeir taka ekki óþarfa áhættu, eins og að aka vélhjóli án hjálms, eða taka þátt í einhverju sem gæti skaðað það án þess að vera með viðeigandi hlífðar- og öryggisbúnað. Aka ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Þau borða heilsusamlegt fæði, stunda líkamsrækt og reykja ekki. Fólk í kærleiksríkum samböndum vill ekki að maki þeirra þurfi að þjást í sorg vegna missis vegna ótímabærra veikinda, svo þau leggja áherslu á að hugsa vel um sjálft sig – bæði af umhyggju vegna sjálf síns og af umhyggju fyrir maka sínum.
Einu sinni enn, farsæl og ástrík sambönd verða ekki til af sjálfu sér. Þau eru niðurstöður þess þegar hver aðili tekur líkamlega, tilfinningalega, fjárhagslega, skipulagslega og andlega ábyrgð í sambandinu.