Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hvernig áttu að breyta huganum og lífi þínu.

Það er umbylting í gangi, það er umbylting í huga okkar, í lífi okkar.  Allir eru að tala um mátt hugans, jákvæða hugsun, lögmál aðdráttaraflsins, skapandi sýn, hvatningu og njóta velgengni. Allir eru að leita að meiri upplýsingum um hvernig við getum breytt huganum og lífinu,  hvernig er hægt að njóta velgengni.

Það er ekkert leyndarmál að hugurinn skiptir miklu máli í lífi þínu. Þú veist það, þú hefur heyrt um það og þú hefur jafnvel nú þegar byrjað að vinna með það.

Við lærðum ekki um það í skóla hvernig á að breyta huganum og lífinu. En þó við höfum ekki lært um það í skóla, þá er skýrt að við verðum að læra nýjar aðferðir um  hvernig við hugsum og breyta hugsanamynstri okkar.

Ef þú breytir hugsunum þínum, orðum, aðgerðum og viðhorfi, þá mun hugurinn uppfæra hvernig hann starfar í samræmi við þessar nýju upplýsingar sem hann hefur meðtekið.

Skoðum betur það sem er vitað um hugann og orku hans.

Undirmeðvitundin stjórnar um 90% af heilanum.
Undirmeðvitundin er fjölverkavinnsla og getur framkvæmt mörg ósjálfráð verkefni á sama tíma.
Einn aðal tilgangur undirmeðvitundarinnar er að vernda okkur og halda okkur lifandi.
Allt sem við upplifum í lífinu er geymt í undirmeðvitundinni, til frekari notkunar.
Undirmeðvitundin veit ekki munin á því sem þú skynjar sem raunveruleika eða hvað er ímyndun.

  • Fylgstu með hugsunum þínum.  Þau verða að orðum.
  • Fylgstu með orðum þínum.  Þau verða að aðgerðum.
  • Fylgstu með aðgerðum þínum.  Þær verða að hegðun.
  • Fylgstu með hegðun þinni.  Hún verður að persónuleika.
  • Fylgstu með persónuleika þínum.  Hann verður örlög þín.

Frank Outlaw.

Það fyrsta sem þú gerir til að breyta huganum og lífi þínu er að byrja á hugsunum þínum.

Ef þú heldur að enginn viti hvað þú ert að hugsa, að hugsanir þínar séu leyndarmál og að þær skaði ekki neinn, þá hefur þú rangt fyrir þér. Þær skaða og þær skaða þig fyrst.

Hugsanir okkar sjást á því hverjar aðstæður okkar eru.  Horfðu á einhvern sem nýtur velgengni.  Hugsaðu um hvaða hugsanir eru ráðandi hjá þessum aðila. Þessi aðili hefur jákvæðar og uppbyggjandi hugsanir sem yfirvinna neikvæð atriði.

Breyttu hvernig þú hugsar. Breyttu öllum neikvæðum hugsunum í jákvæðar hugsanir.  Finndu jákvæðar hliðar á öllu. Hvenær sem þú stendur þig að því að hafa áhyggjur af einhverju, áfellast einhvern eða einhverja atburði,  áttaðu þig á því að allt byrjar í hugsunum og þær verða síðar örlög þín.  Beindu hugsunum þínum að einhverju sem þú raunverulega hefur gaman af.  Upplifðu þig hamingjusaman og á braut velgengninnar.

Þú verður að gera jákvæðar hugsanir að ráðandi hugsunum í öllum sviðum lífs þíns.
Er einhver óþægilegur atburður eða leiðinlegt veður eða eitthvað annað erfitt þess virði að vera í  slæmu skapi, vera með sífelldar áhyggjur, neikvæðar hugsanir og að lokum vansælt líf. Nei það er ekki þess virði. Hugsaðu um það.

Byrjaðu að vinna með hugsanir þínar og þú munt breyta huga þínum og lífi. Það mun ekki gerast yfir nótt, en það mun gerast. Mundu að það eru ekki nein mistök, aðeins seinkun á niðurstöðum.

„Allt sem maðurinn afrekar og allt það sem honum mistekst að afreka eru beinar afleiðingar af hans eigin hugsunum.“ James Allen.

Bestur óskir til þín um velgengni og persónulegan jákvæðan vöxt.


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband