Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Að breyta viðhorfum

Hvernig þú lítur á líf þitt og veröldina í kringum þig, ákvarðar hversu skapandi þú ert í lífinu. Viðhorf eru ekki rétt eða röng í sjálfu sér, heldur styrkjandi eða takmarkandi. Þau eru annað hvort speglun innri veruleika þíns, sem fær þig til að blómstra, eða ósannindi sem   draga úr líkum þess að þú upplifir að vera þú sjálfur.

Viðhorf geta mótast í fjölskyldunni, út frá þjóðfélagslegum eða menningarlegum skilyrðum eða orðið til vegna góðrar eða slæmrar reynslu í lífi okkar. Þau eru einfaldlega  hugmyndir og hugsanir sem eru grundvöllur tilveru okkar. Á þessum grunni byggjum við í nútíð og framtíð væntingar okkar, skoðanir, viðbrögð, val og hegðun. Rétt eins og grunnur byggingar ræður því hvort hún verður sterk og örugg eða riðandi og fallvölt munu lífsviðhorf okkar ráða því hvort við upplifum okkur styrk og einstök eða takmörkuð og neikvæð.

Oft má greina lífsviðhorf fólks með því að skoða líf þess. Sé manneskjan ánægð og fullnægð í samböndum sínum, störfum, heilsufari, fjármálum og fleiru er næstum öruggt að hún hefur uppbyggileg og sönn lífsviðhorf. Hvað segir lífshlaup þitt um þín viðhorf?

Innlit í lífsviðhorf þín.

Skoðaðu hin ýmsu svið lífs þíns, til að athuga hve ánægður og sæll þú ert . Hvað telur þú að hafi áhrif á fullnægju þína að þessu leyti?  

Skráðu nú niður þau viðhorf sem styrkja þig á hverju sviði lífsins til að gera þig fullkomlega ánægðan. Sértu til dæmis ánægður með fjármálin, gætirðu komist að því að þú teljir veröldina auðuga, að þú sért glúrinn í að afla fjár, eða að peningar séu aðeins umbreytanleg orka.

Skráðu á sama hátt á annað blað þau takmarkandi viðhorf þín til þeirra sviða lífs þíns sem þú ert ekki sáttur við. Grafðu djúpt í sjálf þitt og ef þér finnst þú til dæmis í ekki góðu ástarsambandi, gæti það verið vegna þess að þú teljir erfitt að finna góða elskhuga eða að þú sjálfur sért illa fallinn til ásta eða ekki nógu aðlaðandi – og athugaðu að allt eru þetta ósannindi.


Innblástur sem breytir lífsviðhorfum

Taktu nú listann með jákvæðu viðhorfunum og lestu hann yfir. Lokaðu augunum og skoðaðu hvað þér finnst um þessi viðhorf. Hvernig líður þér líkamlega? Hvaða hugsanir koma fram? Hvað tilfinningar upplifir þú og finnst þér þú samtengdur þínu sanna sjálfi? Hvernig sérðu lífið fyrir þér hafandi þessi viðhorf?

Farðu eins með listann yfir neikvæðu viðhorfin. Lokaðu augunum og gættu að líðan þinni. Hverjar eru hugsanir þínar og hvernig er líkamlega líðanin. Hvaða tilfinningar vekur þetta upp? Finnst þér þú tengdur þínu sanna sjálfi? Hvernig kemur þér líf þitt fyrir sjónir með þessi viðhorf í farteskinu?

Nú er rétt eða líta enn yfir þennan lista með takmarkandi viðhorfum og ákveða hvort þú vilt halda í þau eða henda þeim. Hafðu í huga að þau eru einungis strengur með hugsunum sem þú hefur lagt inn fyrir. Þærsem þú ert reiðubúinn að varpa fyrir róða, skaltu strika vandlega yfir, en setja í staðinn eins mörg uppbyggjandi viðhorf og þú getur á jákvæða viðhorfalistann. Síðan skaltu taka blaðið með neikvæða listanum og rífa það eða brenna, til þess að gera þér rækilega ljóst hvar lygin skal lenda. Lestu síðan á hverjum degi lista hinna uppbyggilegu viðhorfa, svo þau megi hægt og örugglega síast inn í vitund þína.       
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband