Að njóta í stað þess að þjóta.
Sprenging hefur orðið síðastliðin ár í ferðalögum íslendinga innanlands. Fjöldi fellihýsa og hjólhýsa hefur margfaldast og margir nýjir valkostir í afþreyingu fyrir ferðamenn. Það hefur samt viljað brenna við að við höldum áfram á sama hraða og í stressinu heima. Aðal kappið er lagt á það að komast sem fyrst á áfangastað eða sem fyrst á toppinn.
Ósk Vilhjálmsdóttir rekur fyrirtækið Hálendisferðir www.halendisferdir.is ásamt nokkrum félögum sínum. Þau leggja mikla áherslu á útivist og náttúruskoðun veiti mikla lífsfyllingu. Þar er boðið uppá áhugaverðar ferðir, þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér í þessari kynningu þá ætlum við sérstaklega að skoða ferðir sem snúast um að öll fjölskyldan geti ferðast saman og notið þess. Yfirleitt eru allar gögnuferðir miðaðar út frá þörfum þeirra fullorðnu og í þeim tilfellum sem börn fylgja með þá er planið ekki miðað við þau.
Fjallaferðir þurfa ekki að snúast um göngugarpa, kílómetra, breytta jeppa og fjallstoppa.
Þær ættu frekar að fela í sér náttúruskoðun og gefandi samveru.
Hálendisferðir eru fyrir alla, þær byggja á hugmyndinni um hægan ferðamáta þar er lagt meira upp úr því að njóta en þjóta.
ÆVINTÝRAFERÐ UM HÓLMSÁRBOTNA OG STRÚTSLAUG - fyrir alla aldurshópa
Þetta er spennandi ferð, þar sem öll fjölskyldan getur notið þess að vera saman og upplifa ævintýri sem mun vera til í minningunni alla tíð.
Boðið verður uppá tvær svona ferðir í sumar, 12.-14. júlí og 16. – 18. ágúst, samtals 3ja daga leiðangur.
Náttúruskoðun og fjallabað að Fjallabaki í námunda við eitt mesta háhitasvæði í heimi, Torfajökulsvæðið. Við leggjum við í 3ja tíma leiðangur með tjald, svefnpoka og vistir á bakinu og tjöldum til tveggja nátta við Strútslaug í fallegum fjallasal beint undir Torfajökli. Hér gefst tækifæri til að horfa og hlusta, teikna og mála, fara í skoðunarferðir og að spjara okkur á öræfum.
Annað mjög áhugavert fyrir börn og unglinga sem Ósk og félagar hennar bjóða í sumar er námskeið um náttúruskoðun og myndlist.
Námskeiðið samtvinnar myndlist og útivist. Mæting alla morgna í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Kennslan fer fram í skólanum og á vettvangi.
Við skerpum sýnina með litaæfingum og örvum hæfileikann til að skrá og lýsa upplifun af náttúru og landaslagi.
Við teiknum, mótum landslag og skrifum hugleiðingar. Förum lauslega yfir jarðfræði, fuglaskoðun, kortalestur og ratvísi.
Til að kynna sér frekar þessi og fleiri valmöguleika kíkjið þá á heimasíðuna þeirra.
Þetta er einungis ein af fjölmörgum hugmyndum sem þú getur sett inn í draumaborðið þitt, markmið um að gera skemmtilega og uppbyggjandi hluti með fjölskyldunni.
Samverustundir með fjölskyldunni, þar sem allir eru að njóta sín er besta forvörnin og skapar góðar minningar sem búa með manni alla tíð.
Skemmtu þér vel.