Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

10 ástæður þess að þú færð ekki það sem þig langar í

Ég held að öll  viljum hamingju og velgengni í lífinu.  Hinsvegar, geta mjög fáir raunverulega staðfest að þeir hafi náð því.  Margir vita ekki hvers vegna þeir njóta ekki velgengni.  Fáir vita hvers vegna, en gera samt ekkert í því. Ég hef þau forréttindi að hafa komist yfir lista yfir ástæður þess hvers vegna  fólk hefur ekki náð hamingju og velgengni í lífinu. Þegar ég les í gegnum hann, þá uppgötva ég að sumar ástæðurnar hafa staðið í vegi milli velgengninnar og mín.  Þegar þú ferð í gegnum listann núna, kannaðu þá sjálfan þig, skref fyrir skref, til að finna út hve margar ástæður standa milli þín og velgengninnar.

Skortur á tilgangi í lífinu -  Ég hef engan sérstakan tilgang með lífinu fyrr en ég fer að taka því af alvöru. Ég get verið allan daginn að spila leiki heima, eða skemmta mér með vinunum. Þetta  lýsir engum skilningi á ábyrgð gagnvart fjölskyldunni, engri ábyrgð í vinnunni og auðvitað, enginn tilgangur. Lífið er að mestu leiti venja. Venja sem ég hata, venja sem mig langar að losna við.

Margt fólk sem ég hef hitt er statt þar í lífi sínu sem ég var staddur fyrir mörgum árum síðan. Og smá saman uppgötvaði ég að skortur á tilgangi í lífinu (eða hverju sem er sem skiptir máli) er alltaf og mun alltaf vera efst á listanum yfir misbresti.

Skortur á metnaði til að ná langt – Fólk sem er óánægt með hvar það er statt en er samt tregt til að stefna hærra en miðlungs og vinna að velgengni, mun aldrei verða hamingjusamt.  Ég hef séð það, það kvartar yfir vinnunni,  yfirmanninum öllu  undir sólinni. En það er ekki tilbúið að gera neitt í hlutunum og finna út hvernig það getur náð árangri.

Þegar þeim er sagt hvað þau hefðu getað gert til að komast áfram og  færast uppávið  koma þau með afsakanir um  hvers vegna þau geti ekki gert það.  Velgengni fellur þeim  ekki í skaut  vegna skorts á metnaði til að ná uppúr meðalmennskunni.

Ófullnægjandi menntun – Þetta er ákveðin hindrun, sem hægt er að yfirstíga með hægð.  Hversu oft hefur þú lesið eða heyrt um fólk sem hefur náð langt, sem hafði litla eða enga menntun?  Reynslan hefur sannað að fólkið með “bestu menntunina” er oft það sem hefur komist áfram á eigin rammleik eða er sjálfmenntað.  Á okkar tímum er háskólagráða ein og sér ekki lengur fullnægjandi til að koma þér á toppinn.

Menntun samanstendur ekki bara af þekkingu, heldur þekkingu sem hefur verið aflað með reynslu og vilja til að halda áfram. Við fáum ekki greitt fyrir það sem við vitum, heldur frekar hvernig við nýtum það sem við vitum.

Skortur á sjálfsaga – Sjálfsagi kemur frá sjálfsstjórn. Það þýðir að þú verður að hafa stjórn á öllum þeim ókostum sem þú telur þig hafa. Sjálfsstjórn mun vera ein erfiðasta færni sem þú þarft að tileinka þér. En ef þú nærð ekki að sigrast á ókostum þinum, munu þeir sigra þig.

Slæm heilsa – Engin nýtur framúrskarandi velgengni án góðrar heilsu. Margar ástæður fyrir lélegri heilsu eru vegna skorts á sjálfaga. Nokkur dæmi sem leiða til slæmrar heilsu eru:

- Ofát
- Rangur ávani í hugsun
- Reykingar
- Skortur á líkamlegri hreyfingu
- Áfengisneysla

Neikvæð umhverfis áhrif – Flest fólk sem hefur tilhneigingu til að fremja glæpi, réttlætir þá sem afleiðingu af slæmu umhverfi og/eða slæmum félagsskap í æsku.

Seinlæti –  Er ein algengasta ástæða fyrir mistökum.  Seinlæti er að fresta eða komast hjá aðgerð eða verkefni og er oftast tengt við fullkomnun.  Flestu fólki mistekst í lífinu vegna þess að það er að bíða eftir „rétta  tímanum“.  Málið er, að tíminn mun aldrei verða réttur. Byrjaðu þar sem þú stendur, og nýttu þér það sem þú hefur í kringum þig, betri verkfæri munu koma upp í hendurnar á þér á leiðinni, þegar þú þarft á þeim að halda.

Skortur á seiglu – Það eru margir góðir í að byrja, en mjög fáir sem ljúka því sem þeir byrja á.  Þeir byrja á einhverju með mjög háleitar vonir og eldmóði en tapa spennunni þegar þeir standa frammi fyrir fyrsta ósigrinum.  En við ættum að læra að ekkert kemur í staðinn fyrir skort á seiglu.

Neikvæður persónuleiki – Það er engin von á velgengni fyrir fólk sem hrekur aðra í burtu með neikvæum persónuleika. Það eru ekki nógu margir sem átta sig á þessu.  Þú öðlast velgengni í gegnum samvinnu við annað fólk. Neikvæður persónuleiki mun ekki hvetja til samvinnu.

Hér fyrir ofan eru 10 ástæður sem hafa stoppað þig af í að njóta hamingju og öðlast velgengni.  Skoðaðu  þær og sjáðu hvort einhverjar þeirra eiga við þig.  Ef þú kannast við eitthvað af þessu í eigin fari spurðu þá sjálfan þig „ hvað ætla ég að gera til að yfirvinna það?“ 

Byrjaðu strax.   Skrifaðu það niður og byrjaðu að ná  árangri strax í dag.

 
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband