Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Innri máttur

Hver ert þú þegar þú gengur fram í sjálfs þíns mætti? Þegar þú lifir í “kjarna” þinnar eigin miðju, mikilleika þíns, hins raunverulega sjálfs þíns? Þegar við göngum fram í okkar eigin afli, þá ljómum við hið innra og ytra. Okkur finnst við standa á traustum grunni og vera samtímis létt og sveigjanleg. Við erum hafin yfir hversdagslega dómgreind: það sem er rétt og rangt, skilin á milli þess sem telst gott eða slæmt. Við hættum að áfellast okkur sjálf og aðra. Við öndum djúpt að okkur og slökum á. Okkur finnst við friðhelg og allrar athygli verð. Við hættum að reyna of mikið á okkur og berja okkur áfram og í stað þess látum berast með straumi lífsins og hættum að láta alla hina meiri möguleika fram hjá okkur fara.

Okkar sanni máttur kemur innan úr hinum eiginlega “kjarna” okkar og þegar hann er alls óhindraður gerir hann leiðina til auðsældar, hagstæðra tengsla og frelsis léttari. Það er aðeins þegar við látum hið “minna sjálf” okkar taka stjórnina að við finnum til vanmats, efa og ótta. Þessu vörpum við á herðar annarra og “heimsins” og fyrr en við vitum af hættum við að hrærast í vilpunni  sem þú að líkindum kannast við.

En hvers vegna látum við okkur þá falla í þessa vandræðagryfju sem færir okkur ekkert nema basl og vonbrigði að höndum? Erum við raunverulega haldin sjálfspíningarlosta? Ekki held ég það. Ástæðan er aðeins að við gleymum hver við raunverulega erum og hvernig við förum rangt með okkar innri mátt. Við látum leðju byrgja augu okkar og við töpum okkar innri sjón En sem betur fer eigum við alltaf val og með dálítilli aðgát getum við valið að nýju á hverju andartaki.

Innsæi sem lýkur upp okkar innra afli



Hvernig hagnýtir þú þinn innri mátt þessa stundina? Lifir þú í þínum raunverulega innra mætti, eða eða lætur þú þitt “minna sjálf” hafa yfirtökin?

Hvernig getur þú vitað hvenær þú lifir í “kjarna” sjálfs þín og beitir afli þínu til fulls? Hvernig líður þér tilfinningalega, hugrænt, líkamlega og andlega? Hverjar eru vísbendingarnar þegar þú ert að láta þitt minna sjálf um stjórnina? Hverjar eru tilfinningarnar, hugsanirnar og hegðunin gagnvart sjálfum þér og öðrum?

Hvað getur hjálpað þér til að skipta um frá “minna sjálfinu” og yfir í “stóra sjálfið”? Hvað styður þig á leiðinni yfir í þitt sanna sjálf?


Andleg hvatning til að öðlast þitt innra sjálf

Settu þér fyrir sjónir hvernig það sé að einbeita sér að –  og eignast –  þinn eigin mátt. Skrifaðu niður hvað þér finnst um sjálfan þig og umheiminn sem þú hrærist í. Skrifaðu niður þá jákvæðu hluti sem þú nýtur í núverandi ástandi.

Skrifaðu af eigin “andagift” hvað það er sem fær þig til að halda þig við “litla sjálfið”. Hvaða þörfum ertu að reyna að fullnægja. Skráðu alla ávinningana og afleiðingarnar. Spurðu sjálfan þig hvort þetta sé þess virði? Ef svo er ekki, kannaðu þá allar þær leiðir sem þér eru færar til að að hverfa til baka inn í þinn eigin mátt og legðu þig fram um að nýta þær þegar færi gefst.

Verðu 5-10 mínútum í að hugleiða hvernig líf þitt yrði, ef þú í raun og veru lifðir af þínu eigin afli, í stað hins “litla sjálfs” þín . Tengdu þig við hið “stærra sjálf” þitt og veittu því athygli hvernig þér líður líkamlega og tilfinningalega. Kannaðu hugsanir þínar og sjálfstrú. Sjáðu sjálfan þig að verki með öðru fólki sem skiptir máli og í umheiminum. Láttu þær tilfinningar og þrótt sem því fylgir að eiga sjálfan þig flæða um líkama þinn og inn í hverja frumu!
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband