Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Ertu að ná hámarksárangri?

Þessi saga segir frá hvernig venjulegt fólk  náði árangri langt umfram sem það hafði nokkrun tímann haldið að það gæti.  Einföld tækni sem allir geta nýtt sér.

(Þessi tilraun var gerð í skóla í San Francisco Bay af Dr. Robert Rosenthal í Harvard háskólanum.)

Í byrjun skólaársins kallaði skólastjóri skólans á þrjá kennara til fundar með sér.

Við þessa þrjá kennara sagði hann: „ Samkvæmt skoðun okkar síðustu 3 – 4 ár þá hafið þið yfir að búa frábærum kennsluhæfileikum. Við höfum því komist að þeirri niðurstöðu að þið eruð þrír bestu kennarar skólans.  Til þess að sýna ykkur að við metum það, þá höfum við sett saman þrjá bekki, hver með 30 gáfuðustu nemendum skólans. Þetta eru nemendurnir sem eru með hæstu greindarvísitölu í skólanum. Við höfum ákveðið að þið munuð hver um sig kenna þessum bekkjum.

Við viljum ekki gera upp á milli nemenda skólans, þess vegna er mjög áríðandi þið segið þessum nemendum eða gefið í skyn með nokkrum hætti að þeir séu í þessum útvalda hópi.  Og ekki síður þá viljum við einnig leggja mjög mikla áherslu á að þið ræðið þetta alls ekki við foreldra þessara barna, því við viljum alls ekki valda neinni spennu í samskiptum við þau. Við óskum eftir því að þið kennið eins og þið hafið gert hingað til og notið nákvæmlega sama námsefnið og við væntum þess að þið náið mjög góðum árangri með þessa nemendur.

Niðurstaðan: Í enda skólaársins, þá voru þessir nemendur ekki bara hæstir í skólnum, heldur var allur skólinn hæstur af háskólum á þessu landsvæði.

Skólastjórinn kallaði kennarana þrjá til fundar við sig og sagði eftirfarandi:

„Jæja, þetta var mjög gott ár hjá ykkur.“

„Já þetta gekk mjög vel....en þetta var mjög auðvelt,“ sögðu kennarnir. „ Það var svo auðvelt að kenna þessum nemendum.  Þeir höfðu svo mikinn áhuga á að læra, það var svo gaman að kenna þeim.“

„Það er þá réttast að ég segi ykkur sannleikann, „ sagði skólastjórinn.

„ Þetta var tilraun, og þessi 90 nemendur voru valdur algjörlega af handahófi úr öllum skólanum.  Þegar við röðuðum þeim uppí þessa 3 bekki, þá höfðum við ekki hugmynd um greindarvísitölu þeirra.“

„Það er alveg ótrúlegt!“ sögðu kennarnir þrír. „ En hversvegna náðu þau svona frábærum árangri? Þeim gekk svo vel. Þau náðu alveg ótrúlega góðum einkunnum.  Ah hah! Já! Það var auðvitað vegna þess að við erum svo frábærir kennarar.“

Þá sagði skólastjórinn „ ég held að ég þurfi að upplýsa ykkur um fleiri atriðið í  tilrauninni.  Í byrjun skólaársins, þá settum við nöfn allra kennaranna í skólanum í hatt og við dróum nöfn ykkar þriggja úr hattinum.

Þessum venjulegu nemendum gekk svo vel, vegna þess að leiðbeinendurnir höfðu trú á sjálfum sér, þeir trúðu á þau og höfðu miklar væntingar til þeirra. Jákvæðar væntingar, var lykillinn að velgengni þeirra.

Þetta staðfestir að ef þú hefur trú á þér, þá framkvæmir þú ótrúlegustu hluti og nærð að þeim árangri sem aðrir halda það þú náir.
Vegna þess að skólastjórinn vænti svo mikils, þá gerðu kennarnir það líka. Og vegna þess að kennararnir væntu svo mikils, þá gerðu nemendurnir það líka.  Dr. Rosenthal hefur endurtekið þessa tilraun 300 sinnum og hefur alltaf fengið svipaðar niðurstöður.

„ Til á ná meiri árangri, verður þú að hafa meiri væntingar. Og fá meira út úr fólkinu sem vinnur með þér, og vænta meira af því.“ Þetta er í raun svona einfalt. En andstæðan er einnig sönn.

Það er þess vegna sem margt mjög hæfileikaríkt og velgefið fólk nær aldrei þeim árangri sem það hefur alla möguleika á að ná. Vegna þess að í allt of langan tíma hefur það verið brotið niður af fólki í kringum sig, sem hefur skaðað sjálfstraustið.

Ef þú væntir þess að þér mistakist, þá mun þér mistakast – ef þú segir „ Sjáðu, ég mun aldrei ná árangri, mun aldrei sigra......  það gengur aldrei neitt upp hjá mér. Og þegar þér fyrir einstaka tilviljun gengur vel, þá segir þú,  „ Þetta var nú bara einstök heppni...... þetta mun nú ekki gerast aftur „ Fólki mistekst, vegna innst inni þá sér það sjálft sig sem tapara, þorir ekki að trúa því að það geti notið velgengni. Við öll náum þeim árangri sem við væntum að ná. Hafðu trú á sjálfum þér og að þú sért þess verðug/ur að njóta velgengni, þannig hámarkar þú möguleika þína.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband