Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Bros getur gert þig glaðari

Brosir þú vegna þess að þú ert glaður, eða verður þú glaður þegar þú brosir?

Í sálfræði er kenning sem er kölluð “svörun við andlitssvipbrigðum” sem útleggst, samkvæmt rannsókn D.A. Breinstein og samverkamanna hans, að ákveðnar ósjálfráðar hreyfingar í andliti  framkölluðu nægjanlegar upplýsingar til að framkalla tilfinningalega upplifun og hegðun. Í einföldun, ef þú brosir þá framkallar það tilfinningalegt hugarástand.

Samkvæmt rannsóknum sem R.B. Zajonc og samstarfsmenn kynntu, voru sannfærandi vísbendingar um að bros fengi fólk til að upplifa gleði, óháð því hvernig því  leið áður.  Rannsakendurnir fundu út að bros framkölluðu breytingar í heilanum, sem kældi blóðið, sem síðan fengi fólk til að upplifa gleði.
Rannsóknir  Robert Sutton hjá Stanford háskólanum sýndu að bros og glaðlegt lunderni yfirmanna höfðu jákvæð áhrif á starfsfólk og frammistöðu þess í vinnu.

Rannsóknirnar virðast gefa að hluta svör við spurningunni: brosir þú vegna þess að þú ert glaður, eða verður þú glaður þegar þú brosir? Rannsóknirnar virðast gefa vísbendinar um náin tengsl huga og líkama. Michael Lewis, einn af þeim sem stýra rannsókum á þessu í háskólanum í Cardiff, ályktar að tilfinningar eru ekki bara bundnar við heilann, þær eru hluti af öllum líkamanum, eins og t.d. andlitinu, sem er fullt af vöðvum, sem hjálpa og styrkja tilfinningarnar sem við höfum.

Svo næst þegar þú vilt upplifa gleði, BROSTU. Heilinn og andlitið þitt vita hvað þau eru að gera.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband