Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Örugg/ur með opið hjarta

Lifir þú lifinu með hjartað að mestu opið eða lokað? Eyðir þú mestum tíma þínum í að vernda  þig gagnvart höfnun eða að einhver sé mögulega að meta kosti þína, eða ertu mest allann tíma þinn opinn fyrir því að deila ást og kærleika þínum meðal annarra?

Margir hafa upplifað erfiðar aðstæður í æsku, reynslu sem varð þess valdandi að þeir lokuðu hjarta sínu. Hvaða aðstæður upplifiðir þú, sem leiddi til þess að þú lokaðir hjarta þínu?

•    Mismunandi útgáfur af líkmalegri og/eða kynferðislegri misnotkun.
•    Mismunandi útgáfur af andlegri misnotkun, eins og aðfinnslum, refsingu, skömmum, háði, einelti eða kaldhæðni.
•    Að vera vanrækt/ur, hunsuð/aður, vanmetin eða óséð/ur.
•    Að vera kaffærður eða bældur af foreldri, dreginn áfram og notaður til að uppfylla þeirra eigin einsemd.
•    Hafnað af foreldrum, systkinum eða jafningum.
•    Missa foreldri vegna skilnaðar eða dauðsfalls.
•    Missa systkini, vin eða náinn ættinga.
•    Fötlun eða veikindi sem takmarka möguleika.

Upplifiðir þú eitthvað af því sem nefnt er hér að ofan eða öðrum mjög ögrandi aðstæðum og það var enginn til staðar til að styðja þig með umvefjandi kærleika í gegnum sársaukann, sem getur hafa verið of erfiður og tilfinningaríkur fyrir þig, þannig að eina leiðin til að komast í gegnum hann var að loka hjartanu.  Þú hefur kannski lært að vera frekar í höfðinu heldur en hjartanu.

Hvað sem því liður, það að halda hjarta sínu lokuðu sem fullorðinn einstaklingur hefur margar neikvæðar afleiðingar.  Meðan þér fannst það  nauðsynlegt fyrir þig að loka hjartanu til að komast af sem barn, þá er það núna að valda þér miklum sársauka. Sem fullorðnir einstaklingar, þá verðum við að læra að vinna á hjartasárum okkar með kærleika, án þess að loka okkur af.

HVAÐA AFLEIÐINGAR HEFUR ÞAÐ EF ÞÚ LOKAR HJARTANU?

•    Ég upplifi einmannaleika og tómleika.
•    Ég get ekki upplifað tengingu við aðra einstaklinga
•    Ég á hættu á að ánetjast og misnota –mat, vímuefni, áfengi, sjónvarpsgláp, kynlíf, reiði, skammir osfrv.  Til að reyna að fylla tómleikann og fjarlægast einmannaleikann.
•    Samböndin sem ég stofna til eru ófullnægjandi.
•    Lífið er ekki skemmtilegt.
•    Ég upplifi áhyggjur og/eða þunglyndi.
•    Ég er oft veik/ur

Ertu hrædd/ur við að opna hjartað þitt? Ertu hrædd/ur að vera særð/ur eða hafnað, stjórnað eða misnotuð/aður?  Ertu hrædd/ur að ef þú opnar hjarta þitt, muntu ekki geta höndlað tregann, ástarsorg, einmannaleika, dapurleikann og sorgina sem fylgir lífinu?

HVERNIG FERÐU AÐ ÞVÍ AÐ HALDA HJARTANU OPNU OG SAMT UPPLIFA ÖRYGGI?

Þú munt byrja að upplifa öryggi þegar þú lærir að taka ábyrgð á tilfinningum – ábyrgð á þínum eigin tilfinningum.  Þegar þú varst barn, þá hafðir þú ekki þroska til að vera fær um að höndla tilfinningar eins og ástarsorg og einmannaleika án kærleika og ást frá fullorðnum einstaklingi sem þú gast treyst.  Í dag ertu orðin það  þroskaður að þú getur og verður að geta höndlað þessar tilfinningar án aðstoðar annars einstaklings.  Munurinn er sá að þessi fullorðni einstaklingur þarft að vera þú sjálf/ur.  Þú verður að læra að vera þessi kærleiksríki einstaklingur sem er fær um að höndla sárskauka fullar tilfinningar sem tilheyra lífinu, þannig að þú þurfir ekki að loka hjartanu og deyfa þig með fíkn.

Að vera kærleiksríkur einstaklingur  er þegar við erum í góðum tenglsum við öfluga uppsprettu andlegra tilfinninga.Við erum ekki að tengja okkur við erfiðar upplifanir og erum ekki að bregðast við út frá sárum endurminningum.  Þessar erfiðu endurminningar og upplifanir sem koma af ótta og falskri trú, gera okkur ófær um að höndla sársaukafullar tilfinningar lífsins.  Þetta er sá hluti af þér sem lokar hjartanu þinu til að verja þig fyrir sársaukanum, sem er jafnframt  að orsaka stærstan hluta af sársaukanum sem þú átt við að glíma núna.

Þegar þú tekur ákvörðun um að fara frá því að vernda þig gegn sársaukanum í það að læra að elska sjálfan þig og aðra, þegar þú færist frá því hvernig þú bregst við aðstæðum, byggðum á sársukafullum upplifnunum í æsku í að ná tengingu við andlega uppsprettu við kærleika þinn og visku. Þegar þú tekur ákvörðun um að draga lærdóm af frekar en að vernda þig, þá mun hjarta þitt opnast með eðlilegum hætti.  Ákvörðun þín um að vernda þig fyrir sársauka með mismunandi formi af hegðunarmynstri, viðheldur því að halda hjartanu þínu lokuðu.

Taktu ákvörðun í dag að læra hvernig þú getur elskað þig og aðra, verið kærleiksríkur einstaklingur og taktu eftir hvernig líðan þín um breytast.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband