Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Við getum ekki talað saman

Hvað eiga pör í raun við þegar þau segja, „ við getum ekki talað saman“?

Skoðum  frekar hvað þau meina með því að segja „tala saman.“

Allt of oft þegar annar aðillinn segir, „við getum ekki talað saman“,  er viðkomandi að meina„ ég get ekki fengið maka minn til að hlusta á mig og skilja hlutina frá mínu sjónarhorni.“  Og undir því er þetta, „ ef makinn minn aðeins skildi hlutina  frá mínu sjónarhorni, hann eða hún mundi breyta sér og gera hlutina á minn hátt.“

Svo það sem aðilinn í raun meinar þegar hann segir, „ við getum ekki talað saman,“ er „ ég vil stjórna maka mínum en hann eða hún vill ekki hlusta.“

Hugsaðu um seinast þegar þú reyndir að tala við maka þinn. Vertu alveg hreinskilinn við sjálfan þig – hvers vegna vildir þú tala saman.

Ef þig langaði til að tala um einhverja áhugaverða eða fyndna uppákomu sem henti þig, eða um eitthvað sem þú lærðir eða uppgötvaðir án kröfu á maka þinn um að breytast, þá var hann meira en viljugur til að hlusta. En ef þú vildir tala um eitthvað sem þér mislíkaði við það sem makinn þinn gerði eða var að gera, þá var maki þinn ekki svona móttækilegur.  Eða makinn þin væri líklegur til að setja þig úr jafnvægi, ef þú kæmir fram sem fórnarlamb að kvarta yfir einhverjum eða einhverju og værir að leita efitr samúð frekar en hjálp.

Allt of oft er það að tala um tilfinningar þínar, leið til að gera maka þinn ábyrgan fyrir líðan þinni. Hann eða hún verður að breytast svo þér líði betur, eða gera eitthvað til að taka ábyrgð á líðan þinni. Þegar þetta er málið, er líklegt að maki þinn sé minna ákafur í að „tala saman“, vegna þess að reynsla hans eða hennar er þú ert að nota líðan þina sem form af stjórnun eða ásökunum. Engum líkar að vera á þeim enda.

Þannig að þegar pör segja „við getum ekki talað saman, „ er líklegt að þau séu með einum eða öðrum hætti að reyna að stjórna hvort öðru, frekar en að læra.  Það sem þau raunverulega meina er að þau geta ekki talað saman um vandamál vegna þess að annað eða bæði eru ekki opin fyrir því að læra um hinn aðilan eða sig sjálft. Annað eða bæði eru að reyna að fá hinn til að breytast, frekar en að læra hvernig þau eru hvort um sig að skapa sín eigin vandamál eða vandamál sín á milli  og hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar út frá kærleika  og ástúð.

Mörg pör í nýjum samböndum segja, „ við getum talað saman í margar klukkustundir.“  En síðar í sambandinu  segja þau, „ við getum ekki talað saman.“  Þetta er vegna þess að í byrjun á sambandi þá erum við ekki að gera hinn aðilann ábyrgan fyrir líðan okkar og tilfinningum. Þau eru að deila hvort öðru og hlusta til að læra um hvort annað.

Samt er allt of algengt að stuttu eftir að pör eru komin  í fast samband, þá hætta þau að „læra“ og byrja að „stjórna.“  Í stað þess að gefa og deila,   eru þau nú að reyna að fá eitthvað frá hvort öðru.  Bæði verða föst í því að hvort um sig vilja stjórna hvað þau eru að fá frá hinum aðilanum – skilning, samþykki, tíma, athygli, ást, kynlíf. Um leið og þau byrja að reyna að stjórna hvað það er sem þau vilja, þá er líklegt að þau sigli inni í árekstra og baráttu, þegar annað eða bæði standa á móti því að vera stjórnað, eða annar gefur endalaust eftir og upplifir sig misnotaðan og fyrirlitinn.
Þegar hvor aðili um sig lærir hvernig hann á að taka ábyrgð á eigin líðan og tilfinningum, hættir að reyna að stjórna og setur sér að læra um sjálfan sig og hvort annað, þá endurheimta þau aftur hæfileikan til að „geta talaða saman.“  Góð samskipti eru eðlileg, þegar tilgangurinn með því „að tala saman“ er að læra frekar en að stjórna.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband