Allra besta gjöfin
„Endrum og sinnum færðu í hendurnar svo sérstaka bók að þér finnst þú verða að deila henni með öllum þeim sem þú þekkir. Þetta er slík bók.“ Þessi texti er aftan á bókinni Allra besta gjöfin. Þetta virkaði fyrst þannig á mig, hmm eitthvað lélegt auglýsingaskrum. En ég verð að segja að þessi staðhæfing stenst alveg, eftir lestur bókarinnar þá virkilega fer maður að endurmeta hlutina.
Mér fannst því alveg upplagt að geta boðið lesendum mínum þessa frábæru bók á tilboði í vefverslun á velgengni.is. Hægt er að panta hana með því að smella á meðfylgjandi link Allra Besta Gjöfin þar er hægt að kaupa bókina á aðeins 2.250 krónur, en fullt verð er 2.750 krónur.
Þetta er líka ein af þessum bókum, sem bæði er auðlesin og fyllir mann krafti og löngun til að framkæma og gera breytingar til batnaðar. Opnar líka augu manns fyrir því að lausnin liggur hjá manni sjálfum. Mig langar til að fá að deila með ykkur smá broti úr bókinni, broti sem mér finnast m.a. skipta máli. Það var reyndar erfitt að velja en hér kemur eitt stutt brot:
„GJÖF DRAUMA
Annað slagið skynjar þú innst inni að eitthvað stórkostlegt sé um það bil að gerast. Svo eru aðrir dagar þegar hið stórkostlega í lífinu kemur þér gersamlega á óvart......
..... Ég hef reynt að velja, á meðan ég hef verið að setja saman ALLRA BESTU GJÖFINA fyrir þig, hver þessara gjafa er sú miklivægasta. Ef ég yrði að velja eina held ég að ég myndi velja GJÖF DRAUMA, því draumar gera okkur kleift að sjá lífið eins og það getur orðið, ekki eins og það er. Á vissan hátt leyfir GJÖF DRAUMA okkur að sækjast eftir öllum öðrum gjöfum sem við óskum okkur í þessu lífi.
Red þagnaði í nokkur augnablik og virtist vera að móta hugsanir sínar: „Besta leiðin til að kynna þig fyrir einhverjum sem eiga sér drauma. Ég kynntist mörgum á lífsleiðinni. Ég leit alltaf svo á að vinátta þeirra sem áttu sér drauma væri gulls ígildi.
Einn þeirra fyrstu sem ég kynntist og átti sér stóra drauma, var maður sem dreymdi um að búa til stað og hluti sem gætu örvað ímyndunarafl fólks. Hann var alltaf fullur af eldmóði allt sitt líf. Eins og aðrir þurfti hann að takast á við sinn skerf af áföllum og mistökum, svo og marga úrtölumenn. Ég hvorki hitti hann, né talaði við hann í síma, svo að hann vildi ekki deila með mér nýjasta verkefni sínu. Hann hafði þann vana að útbúa risastóra töflu sem hann hengdi á vegginn og teknaði síðan á allar áætlanir sínar varðandi þá drauma sem hann dreymdi hverju sinni.
Þegar hann lá á dánarbeðinu, lét hann festa teikningar af nýjasta verkefninu sínu upp í loftið á sjúkrastofnunni. Þannig gat hann haldið áfram að horfa á draum sinn, og jafnframt haldið áfram að móta hann í huganum.
Meðan hann lá á sjúkrahúsinu kom blaðamaður til að taka við hann viðtal, þótt vinur minn væri orðinn svo veikburða að hann gæti vart talað. Hann færði sig þá til í rúminu og bauð blaðamanninum að leggjast upp í við hliðina á sér, svo þeir gætu horft á teikningar hans í loftinu á meðan vinur minn greindi frá draumnum sínum.
Blaðamaðurinn varð mjög snortinn af þeirri staðreynd að maður sem væri að takast á við alvarlegan sjúkdóm skyldi enn vera jafn fullur af eldmóði yfir draumum sínum. Þegar blaðamaðurinn lauk viðtalinu, kvaddi hann vin minn og yfirgaf sjúkrahúsið.
Vinur minn dó síðar sama dag.
Ég legg áherslu á að þú skiljir kjarna sögunnar. Sá einstaklingur sem getur lifað allt sitt líf og átt drauma sem hann fylgir af slíkum eldmóði að hann er tilbúinn tl að deila þeim með öðrum á dánarbeði sínu – er lánsamur. Vinur minn missti aldrei sjónar á draumum sínum, allt sitt líf. Þeir urði bara stærri og stærri. Um leið og hann hafði látið einn draum rætast tóku bara nýir og enn stærri draumar við.
Þessum vini mínum tókst að kenna fólki að dreyma og mynda sér betri heim. Hann hét Walt Disney.“
Nú á sunnudaginn er mæðradagurinn, mér fannst því alveg upplagt að geta boðið lesendum mínum þessa frábæru bók á tilboði í vefverslun á velgengni.is. Hægt er að panta hana með því að smella á meðfylgjandi hlekk Allra Besta Gjöfin þar er hægt að kaupa bókina á aðeins 2.250 krónur, en fullt verð er 2.750 krónur.
Þetta er bók sem gaman er að gefa einhverjum sem skiptir mann máli, hvort sem sá aðili er maður sjálfur eða einhver annar.
Lífið ræðst af því hvernig þú lifir því.... ekki hvernig þú sóar því.