Málin í sambandinu
Við erum flest öll með einhver ,,mál” sem við þurfum að vinna úr, særindi eða svik, neikvæða hegðun sem þarf að laga. Í öllum samböndum eru upplifanir og hver upplifun í sambandi er tækifæri til að uppgötva eitthvað um sjálfan þig. Við gerum það með því að taka eftir heilbrigðri og óheilbrigðri hegðun, fyrirgefa særindi uppræta svik og til að uppgötva hvað það er þú vilt og vilt ekki í sambandi þínu.
Hvert samband er gjöf, alveg sama hver slæm upplifunin hefur verið í því. Þegar þú tekur eftir málum, særindum, svikum eða hegðun, þá færist þú ennþá nær í átt að þessu einlæga, áræðanlega og fullnægjandi sambandi sem þú ert að leita eftir.
Þig geturskort sjálfsvirðingu, verið þurfandi eða meðvirkur. Kannski ertu að glíma við öryggisleysi eða þörf fyrir að stjórna. Tilfinning eins og reiði sem fær ekki útrás með heilbrigðum hætti, getur orðið bælandi og þar að leiðandi vandamál.
Særindi geta til dæmis verið komin vegna svika, framhjáhalds, blekkinga, eða endurtekins óheiðarleika. Þér var kannski hafnað harkalega af einhverjum og sársaukinn sem þú upplifiðir var niðurlægjandi. Kannski hefur þú verið svívirtur með orðum, misnotaður tilfinningalega eða andlega sem getur verð mjög skaðlegt fyrir sálarlífið og tilfinningar eins og öryggi og vellíðan.
Neikvæð hegðun getur sprottið frá öllum þessum upplifunum ef þú tekur ekki eftir þeim. Þú munt þá halda áfram að skapa þessar aðstæður aftur og aftur. Dæmi um nokkar eru:
• Ef þig skortir sjálfsvirðingu og gildi, getur þú endurtekið upplifað misnotkun, stjórnsemi maka/félaga, eða viðhaldið meðvirkni og upplifað að tilfinningar þínar eru ekki eins mikilvægar.
• Óvirk þrúgandi hegðun er algeng, ef þú viðurkennir ekki og lætur í ljós reiði með heilbrigðum hætti.
• Þörfin til að stjórna veldur þráhyggju og stundum órökréttri eða óraunsærri hegðun þegar þú reynir að gnæfa yfir maka þínum.
• Það getur verð mjög erfitt að koma auga á að þú gefur endalaus leyfi eða opnir á að komið sé fram við þig að virðingarleysi og vanrækslu í sambandi eða samböndum, en það er samt mjög algengt.
• Hræðslan við að vera svikinn aftur, getur haldið aftur af þér að treysta að nýju, hvort sem það er eftir að sá sem sveik þig hefur tekið upp nýja betri hegðun, eða hvort nýjum félaga sé treystandi.
Skoðaðu fyrri sambönd þín og taktu eftir einhverju einu eða öllum þessara atriða. Slepptu því, græddu sárin og breyttu mynstrinu. Færðu þennan nýja þig í stundina núna og inní framtíðar sambönd þín, sem munu verða heilbrigðari og einlægari og meira fullnægjandi.