Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Er ég í heilbrigðu sambandi?

Er sambandið mitt heilbrigt? Hvernig veit ég að sambandið sé heilbrigt?

Alveg eins og líkamlegt heilbrigði er eitthvað sem við sækjumst eftir, þá er andlegt heilbrigði og heilbrigði í sambandi einnig mikilvægt.   En hver einstaklingur hefur mismunandi viðmið um hvað einkenni heilbrigði. Sem dæmi, þá segja sumir að þeir séu mjög heilbrigðir þótt  þeir fái kvef eða flensu nokkru sinnum á ári, meðan aðrir hafa það viðmið að heilbrigði sé að vera aldrei veikur.

Fyrir suma er heilbrigt samband tveir einstaklingar sem aldrei rífast, eða passa upp á hvorn annan eða einfaldlega eru alltaf sammála, eða eru mjög eftirgefanlegir og láta undan hvort öðru.

Fyrir aðra er heilbrigt samband, samband sem er uppfullt af kynferðislegri ástríðu, meðan aðrir trúa að heilbrigt samband er þegar tveir einstaklingar geta rætt öll mál samam og fundið úrlausnir.

Frekar en að leita eftir utanaðkomandi skilgreiningum í heilbrigðu sambandi, þá legg ég til að þú skoðir inná við og skilgreinir fyrir sjálfan þig hvað það er sem er mikilvægt í sambandi. Enda þótt sambandið þitt hafi alla þessa hefðbundnu einkenni fyrir heilbrigt samband, ef það er ekki það sem þú ert að sækjast eftir, þá er það kannski ekki heilbrigt samband fyrir þig.

Eigum við að taka smá dæmi til að átta okkur frekar.

Ólafur, sem er að nálgast fertugsaldurinn, var tilbúinn að gifta sig og stofna fjölskyldu.  Hann hafði verið í nokkrum langtíma samböndum sem höfðu slitnað af mismunandi ástæðum.  Hann hafði verði í sambandi við konu, hana Sigríði í 3 ár. Hún var að ýta á að þau giftu sig og hann var að streitast við, en skildi ekki hvers vegna.

Ólafur og Sigríður eiga margt sameignlegt. Bæði mjög skynsöm og tilfinningalega opnir einstaklingar og bæði langaði að eignast börn. Þau höfðu svipaðar skoðanir, voru samstíga í fjármálum og höfðu svipuð áhugamál.  Kynlífið var gott.  Svo hvað var það sem var að stoppa Ólaf af í að vilja giftast Sigríði?

,,Mér finnst ekki spennandi að eyða tíma með henni. Við virðumst ekki smella saman þegar kemur að því að tala saman.  Ég elska að kafa djúpt í tilfinningar og hugmyndir. Ég elska að sitja við eldhúsborðið og tala í klukkustundir, án þess að taka eftir hvað tímanum líður. Með Sigríði eru samræður erfiðar. Allir halda að hún sem svo frábær fyrir mig, en ég upplifa ekki að vera ástfanginn og ég ég hald að það sé vegna þess að við erum ekki með sama húmor og erum ekki á ná djúpum nánum samtölum. “

Ólafur hafði aldrei áður gert sér grein fyrir hversu mikilvægt þetta var fyrir hann í sambandi. Án þessa var sambandið frekar dauft.

Það var erfitt fyrir Ólaf að enda sambandið við Sigríði, vegna þess að þótt hann væri ekki ástfanginn af henni, þá elskaði hann hana og vildi ekki særa hana. En hann vissi að hann var ekki að fara að giftast henni.

Ári eftir að Ólafur og Sigríður hættu saman, hitti hann konu sem heitir Jóhanna í veislu. Þau fóru að spjalla saman, og Ólafi fannst eins og hann hefði þekkt Jóhönnu allt sitt líf, þau gátu talað saman endalaust. Og þau töluðu saman í klukkustundir, og þau geta ennþá talað saman í marga tíma, jafnvel þó þau hafi verið gift í mörg ár og eigi börn saman.  Ólafur er himinlifandi yfir þessu sambandi sem honum finnst heilbrigt samband.

En hvað þýðir heilbrigt samband fyrir þig?

Heilbrigt samband er í mínum huga: ( þú vilt kannski merkja við þau atriði sem eru mikilvæg fyrir þig í heilbrigðu sambandi)
 

  •     Við getum talað um allt án  þess að óttast reiði eða höfnun frá hinum.
  •     Við styðjum hvort annað í að gera það sem gerir okkur glöð/hamingjusöm.
  •     Við tökum hvort um sig ábyrgð á tilfinningum okkar og getum deild ást, frekar en að hafa væntingar til hins aðilans um að hann eigi að taka ábyrgð á tilfinningum okkar og uppfylla þarfir okkar fyrir ást.
  •     Við hlægjum auðveldlega og finnst skemmtilegt að vera saman.
  •     Við höfum svipuð áhugamál og njótum félagsskapar frá hvort öðru.
  •     Við stuðlum bæði að fjárhagslegu öryggi
  •     Við erum samheldin í húsverkunum og tökum bæði ábyrgð á uppeldi barnana.
  •     Okkur finnst hvort annað áhugavert og hlökkum alltaf til í að njóta þess að vera saman, tala saman og skiptast á hugmyndum.
  •     Við treystum hvort öðru, virðum hvort annað og dáum hvort annað.
  •     Kynlífið hjá okkur er frábært
  •     Við erum bæði mjög ástúðleg, elskum að haldast í hendur, knúsast og kyssast
  •     Við höfum svipaðar trúarskoðanir
  •     Við höfum svipuð siðferðisgildi
  •     Annað – bættu við þínum eigin


Við höfum öll rétt til að ákveða hvað okkur finnst vera mikilvægt fyrir okkur í sambandi. Ef þér finnst að þú sért ekki í heilbrigðu sambandi, ekki örvænta! Með því að fara í innri skoðum og vinnu með sjálfan þig, eru góðir möguleikar á því að þú getur lagað sambandið.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband