Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hvað get ég gert

Það þarf ekki að minna okkur á hvað er í gangi í þjóðfélaginu. Við verðum öll vör við ringulreiðina, sem snertir okkur mismikið.  Þetta eru breyttir tímar og við erum að skapa nýtt Ísland. En til þess að skapa nýtt Ísland þá þurfum við að hugsa með öðrum hætti. Og það byrjar allt á ÞÉR. Þú hefur kraftinn í hendi þér. Já þú. Sérhvert okkar hefur þennan kraft.


Hver er þessi kraftur? Að vita hver þú ert. Bera kennsl á hæfileika þína, uppgötva sannleika þinn, skilja hversu verðmætur þú ert, auka samúð og vita hvað það er sem skiptir þig máli.  Allt þetta er hluti af því hver þú ert... stórfenglegur einstaklingur, með hæfileika, visku og kærleika.  Kröftugur skapari með hæfileika til að sýna og framkvæma það sem þig langar í fyrir þig og umhverfið í kringum þig.
Hæfileikar þínir eru þessir áþreifanlegu og óáþreifanlegu kostir sem þú býrð yfir. Þeir eru þessir náttúrulegu hlutir af þér. Þegar þú uppgötvar hæfileika þína, skilur þú betur hver þú ert og þú hefur skýrari sýn af tilgangi þínum.
Sannleikurinn er grunnurinn í valinu.  Veistu hvað það er sem þú trúir á? Ekki það sem aðrir trúa eða hvað aðrir segja þér að trúa á sem er andstætt sannleika þínum. Að þekkja sannleika þinn, leyfir þér að velja hvað er rétt fyrir þig.  Gefur þér skýrari sýn á hvað það er sem þig langar, hvenær og hvernig þú átt að bregðast við og hvenær ekki ef það er málið.
Gerir þú þér grein fyrir hversu hæfileikaríkur og verðmætur einstaklingur þú ert?  Það endurspeglast í því sambandi sem þú ert í. Ekki aðeins  nánu sambandi, heldur í öllum samböndum og samskiptum.  Að vita að þú ert hæfileikaríkur og verðmætur, alltaf, alveg sama á hverju gengur, gefur þér sjálfsöryggi til að fara í gegnum lífið eins og þú vilt í raun hafa það án ótta og á heilbrigðan og ánægilegan hátt.
Ertu umhyggjusamur og tilbúinn að fyrirgefa sjálfum þér og öðrum? Eða ertu strax byrjaður að skammast og dæma án þess að reyna að skilja aðra? Þegar þú ert tilbúinn að  sína meiri umhyggju og kærleika þá ertu frekar opinn og móttækilegur til að leyfa tækifærum og gleði sem heimurinn hefur upp á að bjóða koma til þín. Þú ert í betra jafnvægi og í meiri tengingu við sjálfan þig og skilur betur aðstæður annarra. Í þessu ástandi, þá skilur þú að hlutirnir eru ekki persónulegir, og ert betur í stakk búinn til að velja út frá kærleika frekar en  ótta.
Hvað viltu fá út úr lífinu? Eða mikilvægara, hvers vegna viltu fá þetta út úr lífinu?  Veistu hvers vegna það skiptir þig máli að vera heilbrigður, eiga fjölskyldu, fjárhagslegt frelsi o.s.fv?  Að vita hvað skiptir máli, veitir þér enn skýrari sýn og umbunin af vali þín verður miklu dýpri.
Vísbendingar um alla þessa hluti eru fyrir framan þig alla daga, hverja einustu stund. Vísbendingar, hugboð, skilningur og viska er að endurvarpast til þín í öllum þeim sem þú hittir, hverri reynslu sem þú upplifir, hverri snertingu og tilfinningu. Þú hefur kraftinn. Horfiðu á lífið eins og spegil og uppgötvaðu kennarann sem þú horfir á, sem ert þú.
Hvað átt  þú að gera til að hafa stjórn á þessum breytingar tímum?  Þú tengist við þig, eins og þú raunverulega ert. Svörin við öllum spurningunum og lausnirnar við öllum þeim áskorunum sem þú stendur frammi fyrir, liggja hjá þér. Um leið og þú veist hver þú ert, þá sérðu skýrar það sem þú leitar að. Veitir þér öryggi og hugarró til að færast áfram með sjálfstrausti og færir þér lífið sem þú sækist eftir, sama hvað það er sem gengur á í kringum þig.


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband