Ný námskeið á haustönn
Við verðum með ný spennandi námskeið á haustönn og munu þau fyrstu byrja um miðjan ágúst. Ný dagskrá kemur inn á vefinn um mánaðarmótin.
Meðal nýrra námskeiða er spennandi og skemmtilegt fjármálanámskeið, fyrir þá sem vilja vaxa og ná árangri í að auka tekjur sínar. Farið í hvaða hegðun þarf að vera til staðar til að vaxa og ná árangri. Hvað það er sem er að stoppa okkur af í að ná enn betri árangri. Hvað þarf að gera til að láta draumana sína rætast, til að upplifa öryggi og vera sátt/ur.
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur, þar sem unnið yfir langan tíma með stuðningi, samvinnu og sjálfsvinnu. Spennandi kostur fyrir þær sem vilja ná árangri og gera jákvæðar breytingar á lífi sínu.
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir karla, þar sem unnið er yfir langan tíma með stuðningi, samvinnu og sjálfsvinnu. Spennandi kostur fyrir þá sem vilja ná árangir og gera jákvæðar breytingar á lífi sínu.
Næring og hollusta, námskeið um mataræði og næringu, hvaða áhrif hún hefur á andlega og líkamlega líðan. Spennandi réttir og aðferðir kenndar. Skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið
Þetta er einungis hlut af því sem verður á boðstólnum í haust, auk þess sem við bjóðum styttri fyrirlestra fyrir samtök og fyrirtæki.
Vertu í sambandi ef þú hefur einhverja fyrirspurn, sendu okkur línu á min@velgengni.is