Reiði
Hefur reiði vald? Upplifir þú þig með mikið vald þegar þú ert reiður? Svarið við þessum spurningum fer eftir því hvað þú meinar með valdi?
Vissulega getur þú hrætt og kúgað fólk með reiði þinni – sértaklega börn eða aðra sem eru líkamlega veikari en þú, eða fólk sem óttast höfnun. Reiði – önnur en þegar einstaklingur bregst við óréttlátri hegðun eða gjörð – er einungs eitt form af stjórnun. Þegar þér tekst að gera aðra hrædda við þig, er það venjulega til þess að fá þá til að framkvæma það sem þú vilt. En það mun aldrei fá þá til þess að líða eins og þú vilt að þeim líður, og það mun aldrei leiða til þess að deila ást.
Vald sem ógnar eða innri styrkur.
Það er stór munur á „valdi sem ógnar“ og „innri styrk“.
Reiði út í aðra er vald sem ógnar, meðan að taka ábyrgð á eigin tilfinningum er að sýna innri styrk.
Fólk sem notar reiði sem form af valdi og stjórnum, trúir að það þýði réttlæti í lokin. Það trúir að hræða eða kúga aðra til þess að framkvæma það sem það vill, muni ganga fyrir það og á endanum gleðja það. Þetta er fölsk réttlæting.
Það getur verið að fólk njóti velgengni í fjármálum í gegnum mismunandi form af ógnun og hagræðingu, fólk sem ávinnur sér velgengni með þessum hætti er ekki hamingjusamt fólk. Hefur þú einhvern tímann séð reiðan einstakling sem er sannarlega glaður?
Hamingja og gleði koma með innri styrk, ekki með valdi sem ógnar. Hamingja og gleði koma þegar þú tekur ábyrgð á eigin tilfinningum og hegðun, og frá því að bera virðingu fyrir öðrum í stað þess að vanvirða eða gjaldfella aðra. Sannarlega hamingjusamt fólk er samvinnuþýtt frekar en að reyna að stjórna.
Hvernig líður þér þegar þú verður reiður?
Ef þú hefur tilhneigingu til að vera reiður við aðra, staldraðu þá við og líttu inná við. Hvenig líður þér þegar þú verður reiður? Þér gæti liðið vel í litla stund, eins og allar fíknir eru góðar stutta stund. En fær það þig til þess að upplifa fullnægju, gleði og frið innra með þér að verða reiður út í aðra? Leiðir það til þess að þú byggir upp gott samband við aðra, fullt af gleði og fullnægju? Þegar þér tekst að fá þínu framgengt með reiði, láta einhvern framkvæma eitthvað eins og þú vilt, upplifir þú að þú sért verðugur, elskandi og sáttur innra með þér?
Ef þú ert hreinskilinn við sjálfan þig, þú munt þú uppgötva að reiði eða önnur mynd af ógnun leiðir aðeins til tómleika tilfinningar. Fullngægja fyrir innri frið og gleði kemur frá því að vera elskandi og kærleiksríkur einstaklingur, hvort sem það er gagnvart sjálfum þér eða öðrum – ekki frá því að fá það sem þú heldur að þú viljir.
Reiði sem er ógnandi er líklega misnotkun.
Reiði sem er ógnandi getur birst í mismunandi myndum. Hún getur verið hávær eða hún getur verið hljóð. Hún getur komið fram sem svipur sem segir, „ef þú gerir ekki það sem ég segi, mun ég refsa þér með því að loka á þig og draga úr ást minni.“ Það getur verið þegjandi þögn, ógnvekjandi augnaráð eða ofsareiði. Það getur verið líkamleg ofbeldi eða tilfinningalegt ofbeldi. En þegar það vanvirðir algjörlega annan einstakling þá er það misnotkun. Það snýst um það að fá það sem þú vilt og lítilsvirða algjörlega líðan eða vilja hins einstaklingsins.
Þegar þú ert staðráðinn í að stjórna, þá gæti reiðin verið ein af þeim leiðum sem þú velur. Þegar það er orðið ávani hjá þér, þá mun það aðeins breytast ef þú verður staðráðinn í því að hætta að stjórna með reiði og byrja að bera virðingu fyrir sjálfum þér og öðrum að vera elskandi og kærleiksríkur við sjálfan
þig og aðra.
Þegar sjálfið þitt trúir að reiði sem ógn og stjórnun sé það rétta fyrir þig, það sem það í raun gerir fyrir þig er að skapa einmannaleika og tómleika.
Svo hvað er það sem þú raunverulega vilt? Vilt þú ryðjast ógnandi áfram, eða viltu vera hamingjusamur og fullnægður einstaklingu, sem getur deild ást með öðrum? Þitt er valið.