Þú ert það sem þú hugsar – helgarnámskeið með Guðjóni Bergmann
Þú ert það sem þú hugsar – helgarnámskeið með Guðjóni Bergmann
Taktu fá helgina 15. til 17.febrúar 2008
Eitt vinsælasta sjálfseflingarnámskeið síðustu ára. Hefur haft jákvæð áhrif á hundruðir Íslendinga (lestu nokkur bestu ummælin frá þátttakendum).
Notendum velgengni.is býðst nú þetta námskeið með 8.000 króna afslætti.
Helgarnámskeiðið fjallar um það hvernig hugurinn starfar og hverju þú getur stjórnað, hvernig þú getur að nýtt þér streitu til framdráttar, byggt upp sjálfstraust og eflt
jákvætt hugarfar, komið lífinu í betra jafnvægi með því að skilja hinar sjö mannlegu þarfir og þjálfað upp einbeitingu og aukið afköst. Kenndar eru einfaldar öndunar-, slökunar og einbeitingaræfingar. Kennt er föstudag frá 20:00 til 22.30, laugardag og sunnudag frá 9:00 til 17:00. Samnefnd bók fylgir með ásamt geisladiski.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.
Staður: Grand hótel Reykjavík
Verð. 32.900 kr.
Tilboðsverð: 24.900 kr. (8.000 kr. afsláttur)
Afsláttarkóði: VELGENGNI
Smelltu hér til að skrá þig
... eða þú getur keypt samnefnda bók fyrir aðeins 1990 kr. (fullt verð er 2990 kr.)
Þú ert það sem þú hugsar er níunda bók Guðjóns, byggð á vinsælu samnefndu helgarnámskeiði og endurspeglar hún víðtæka reynslu hans og hagnýta nálgun á sviði sjálfseflingar og hugarfarsstjórnunar. Lestu bókina og...
- lærðu meira um það hvernig hugurinn starfar og hverju þú getur stjórnað.
- lærðu að nýta þér streitu til framdráttar en draga á sama tíma úr neikvæðum áhrifum hennar.
- lærðu að byggja upp sjálfstraust með því að setja þér markmið og efla jákvætt hugarfar.
- lærðu að koma lífinu í betra jafnvægi með því að skilja hinar sjö mannlegu þarfir.
- lærðu einfalda hugleiðsluaðferð til að þjálfa upp einbeitingu og auka afköst.
Með því að nýta efni bókarinnar til fullnustu má ná auknum árangri á öllum sviðum lífsins, hvort sem er í einkalífi, viðskiptum eða félagslífi.
Hér finnur þú nokkur ummæli þeirra sem hafa lesið bókina:
Enn og aftur hittir Guðjón naglann á höfuðið með nýrri bók sem vekur mann til umhugsunar um mikilvægustu málin. Þessi bók er einstök blanda af fróðleik, sögum, heilræðum, tilvitnunum og hugmyndum sem allir hafa gott af að lesa. Guðjón nálgast efnið með sínum persónulega stíl sem gefur bókinni hans enn meiri slagkraft og trúverðugleika. Guðjón er í dag í fremstu röð þeirra sem skrifa um þessi málefni á Íslandi.
- Thomas Möller, hagverkfræðingur
Frábær bók. Guðjón fær mann til að hugsa um þau málefni sem virkilega skipta máli. Bókin er sett upp á skemmtilegan hátt og mér fannst standa uppúr eftir lesningu bókarinnar sú hugsun að maður er það sem maður hugsar. Finnst bókin skyldulesning fyrir folk sem vil ná árangri með sjálft sig.
- Sævar Pétursson, framkvæmdarstjóri Iceland Spa and Fitness
Eftir að hafa lesið bók Guðjóns; Þú ert það sem þú hugsar ,er ég meðvitaðri um að hvert augnablik skiptir sköpum og hugsunin um hámarksárangur víkur ekki frá mér.
- Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur
Bókin Þú ert það sem þú hugsar er tær snilld. Ég er að byrja á henni aftur og nú með aðgerðir í huga, skemmtileg og bráðholl lesning.
- Björn Jónsson, Akureyri (tilvitnun tekin af bloggsíðu Guðjóns)