Fyrirgefning
Engin getur breytt fortíðinni, en þú hefur vald til að ákveða hvernig þér líður varðandi hana, og það gerir gæfumuninn. Þú getur tekið í burtu alla þá orku sem þú hefur sett í þessar sársaukafullu minningar, og sæst við fortíðina. Fyrirgefning læknar sekt og sár og gerir það hljóðlega, einslega og algjörlega. Fyrirgefning þýðir ekki að þú sleppir einhverjum, en meinar að hamingja þín er meira virði heldur en þjáningar fortíðarinnar. Fyrirgefning þýðir ekki að þú látir viðgangast særandi og meiðandi atburði sem voru gerðir gagnvart þér, en þú endurheimtir rétt þinn til að ráða yfir eigin lífi.
Einmitt núna gætu þessir særandi atburðir verið að stjórna lífi þínu, og hvernig finnst þér það vera að ganga? Fólkið sem særði þig gæti hafa eyðilagt fyrir þér gærdaginn, en aðeins þú ert með það vald að ákveða hvernig þú vilt hafa morgundaginn. Ef þú er uppfullur af sektarkennd vegna fólks sem þú hefur sært, þá mun það að þú fyrirgefir sjálfum þér leyfa þér að færast áfram, en með heilbrigðari hugarfari og heilbirgðari líkama.
Hér eru sex ástæður fyrirgefningar
1. Þér mun líða betur og þú munt hlæja meira. Að losa alla þessa neikvæðu hringrás úr fortíðinni mun leyfa þér að byrja að njóta og elska sjálfan þig og leyfa þér að hafa þessa daglegu gleði sem þig raunverulega vantar. Þessar hindranir munu hætta að stoppa þig af, því þær eru horfnar. Sekt og hatur leysa ekkert, þau aðeins viðhalda neikvæðninni sem stoppa þig af í að upplifa draumana þína og markmiðin í öllum þáttum lífs þíns. Fyrirgefning losar þig við sjúkleikann sem heldur aftur af þér og öllum þessum vansælu gærdögum og þetta endurheimtir lífskraftinn þinn inn í lífið þitt í dag og þú kemur meiru í verk. Fyrirgefning er nauðsynleg til að efla hagsæld og velgengni í öllum þáttum lífs þíns.
2. Þú munt verða heilbrigðari. Að bera neikvæðni er stundum upphaf og örsök af mörgum líkamlegum veikindum. Líkaminn og hugurinn eru samtvinnuð. Alveg eins og ís og gufa eru í rauninni bæði vatn, þá er líkami þinn og hugur mismunandi hluti af sjálfum þér. Slepptu þessu andlega álagi og líkami þinn mun verða í betra ástandi. Ekkert losar betur um andlegt álag eins og fyrirgefning. Fyrirgefning heilar.
3. Fólki mun líka betur við þig. Því mun líða betur í kringum þig og þú munt laða að þér fleira af jákvæðu fólki. Við erum öll ófullkominn, við gerum öll einhver mistök. Eitt af því sem einkennir jákvætt fólk er að það tekur hlutunum ekki eins persónulega og er tilbúnara til að fyrirgefa mistök þegar þau gerast. Fólk sem er með fullkomnunaráráttu er oftar vansælla, er með viðmið sem eru allt of ströng svo erfitt er að ná þeim. Viltu ná meiri árangri? Gerðu það þá, samband þitt við aðra mun lagast strax. Auðvitað er það þess virði að berjast fyrir hlutunum, en ef líf þitt er einungis löng röð af átökum við annað fólk, eru þau átök hræðileg fyrir þig. Fyrirgefðu og lífið mun batna. Það er raunverulega það einfalt.
4. Þú munt hætta að þjást stöðugt. Fyrirgefðu öðrum, einfaldlega vegna þess að það sem gerðist var ekki þín sök. Spurðu sjálfan þig: Hvað var gert við mig? Hvað er langt síðan það gerðist? Er þetta fólk sem olli mér þessum sárindum ennþá hluti af lífi mínu? Hvers vegna ætti ég að þjást ennþá vegna einhvers sem annar gerði mér? Fyrst þetta var ekki mín sök, hvers vegna er ég þá ennþá að gjalda þess? Auðvitað ertu búinn að þjást allt of lengi og of mikið nú þegar. Og kannski er þetta fólk sem særði þig löngu horfið úr lífi þínu. Svo hættu að þjást strax núna. Fyrirgefðu því.
Og kannski getur þú klárað þetta allt strax, en fullkomin fyrirgefning getur kannski verið of mikið fyrir þig í fyrstu, þá er það allt í lagi. Ekki hafa áhyggjur, því þú getur byrjað smátt, fyrirgefið hluta og síðan unnið þig upp. Hvernig væri að fyrirgefa bara tíu prósent? Tuttugu? Áttatíu? Hver fimm prósent af fyrirgefningu eru frábær skref í rétta átt. Því meira sem þú getur fyrirgefið, því betur mun þér líða.
5. Þú ert búinn að refsa þér sjálfum nógu lengi. Að fyrirgefa sjálfum sér stoppar þessa yfirþyrmandi tilfinningu af sekt sem hindrar að þú getir notið hamingju. Spurðu sjálfan þig: Hver var glæpurinn? Hvað er langt síðan hann gerðist? Er ég ennþá sá einstaklingur sem framkvæmir svona? Ef ég hefði verði settur í fangelsi vegna þess, væri ég laus núna? Þú ert líklega búinn nú þegar að refsa sjálfum þér allt of mikið, svo það er kominn tími til að þú gefir sjálfum þér fulla sakaruppgjöf. Fyrirgefning þýðir ekki að gleyma, það þýðir að viðurkenna og taka ábyrgð, og að halda áfram með lífið með jákvæðum hætti, draga lærdóm af mistökunum. Þú getur hætt að velta þér uppúr því hvernig þú varst og hvað þú gerðir, og haldið áfram að byggja upp nýtt og gott líf sem þú átt rétt á. Svo fyrirgefðu sjálfum þér. Í dag. Strax núna. Þar sem þú getur ekki tekið aftur það sem þú gerðir, þá verður þú að gera næst besta hlutinn, og það er að horfast í augu við það sem gerðist og sleppa síðan hendi af skömminni.
6. Enginn þarf að vita. Fyrirgefning er þitt einkamál, milli þín og Guðs eða milli þín og þíns æðri máttar. Þú þarft ekki að hringja í neinn eða skrifa bréf. Fyrirgefning getur verið þín innri lækning, og hún snýst bara um þig. Annað fólk verður að fyrirgefa sjálfu sér fyrir það sem það gerði. Þín umhyggja er fyrir sjálfum þér. Þú ert að þroskast allan tímann, hvers vegna ekki að þroskast til hins betra?
Svo þannig fyrirgefum við. Eins og þú minnist liðinna atburða og fólksins sem tengdist þeim, upplifðu fyrirgefningu sem streymir frá hjartanu, út til þeirra og aftur til baka til þín. Sjáðu fyrir þér hvað gerðist og hverjir voru þar, fyrirgefðu allt og öllum sem tengdust málinu. Ef þú getur ekki séð það fyrir þér sem gerðist þá er það í góðu lagi, ef þú getur bara skynjað og fundið það sem gerðist, og haldið áfram frá þeim stað. Að skynja og finna gengur alveg eins og að sjá eitthvað myndrænt fyrir sér.
Ef reiði brýst út, þegar þú hugsar um einhverja einstaklinga, stattu þá frammi fyrir þeim í huganum í einrúmi, sjáðu þig fyrir þér horfast í augu við viðkomandi. Segðu hvernig þér líður með hvað gerðist, leyfðu allri reiðinni að koma fram, reiðinni sem gýs upp gagnvart þeim. Segðu alla hlutina sem þú myndir aldrei segja ef þú stæðir í alvöru andspænis þeim, en verða samt að koma upp á yfirborðið og út. Fyrirgefðu þeim síðan.
Það getur verið að þú verðir að upplifa að þér sé fyrirgefið af Guði eða þínum æðri mætti. Guð eða æðri máttur fyrirgefur þér fyrsta skiptið sem þú óskar þess, svo þú þarft aðeins að spyrja einu sinni. Ef þú verður að spyrja tvisvar, þá ert það þú sjálfur sem ert ekki að fyrirgefa sjálfum þér. Fyrirgefðu sjálfum þér meðvitaður um að það þarf einungs að biðja Guð eða æðri mátt einu sinni.