Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hamingja

Ertu hamingjusamur?  Stór spurning og svarið við henni er byggt á hvernig þú sérð hamingjuna. Sum okkar tengja hamingju við að ná starfsframa eða eignast peninga, vera mikilsmetinn eða umgangast þekkta einstaklinga, aka um á flottum dýrum bíl, eða geta farið í dýrt og flott frí.  Þessi lista af efnislegum hlutum getur haldið áfram endalaust.  Þetta eru veraldleg afrek.

Um leið og okkur hefur áskotnast eitthvað eða náð einhverju stendur hamingjan oftast stutt yfir. Í raun er það ekki hamingja, heldur gleði.  Sum okkar halda áfram þessari stöðugu leit eftir veraldlegum hlutum í leit okkar að hamingjunni. Ef þetta er leiðin sem þú ert á eða þær aðstæður sem þú ert í, mun það líkega aldrei færa þér innri frið og þessa raunverulegu hamingju sem þú getur átt daglega.

Hugurinn og líkaminn geta aðeins komið okkur áleiðis. Sálin okkar eða okkar innsti kjarni getur leitt okkar alla leið heim og það er þar sem hin sanna hamingja er. Það sem er svo frábært við lífið, það er ekki svo mikið um hvar við stöndum, heldur í hvaða átt við erum að færast.

Taktu þér tíma í næði, hlustaðu á þögnina og skoðaðu í hvað átt þú ert að fara. Hugsaðu um ferðalagið sem þú ert á. Ertu á réttri leið, er það þetta sem þú vilt. Ef ekki, gerðu þá breytingar, breytingar sem færa þig í átt til hamingjunnar. Sönn hamingja er falin í ferðalaginu, ekki áfangastaðnum.

Hér eru nokkrar spurningar sem þú getur spurt sjálfan þig til að komast af stað og byrjað ferðalagið þitt til sannrar hamingju og í tengslin við kjarnann þinn, hjartað þitt. Kjarninn þinn er sá sem þú raunverulega ert, berskjaldaður.

Þú finnur sjálfan þig og hamingjuna með því að skoða hjartað þitt og sálina og hlusta á hvað er verið að segja þér. Þar liggja svörin við hver þú raunverulega ert. Já, það krefst hugrekkist að gera það, en áhættan sem þú tekur mun færa þér verðskulduð verðlaun, hamingjuna.


Hér koma nokkrar ábendingar:

1    Ertu þakklátur fyrir lífið og ertu að fagna framtíðinni?

2    Upplifir þú að þú sér meðvitaður um umhverfi þitt og í tengslum við kjarnann þinn? Hin raunverulega ferð þín í að finna velgengni og hamingju veltur ekki á að fá nýja hluti, heldur að sjá lifið með nýju jákvæðu hugarfari.

3    Hvar ert staddur núna? Aðalmálið er ekki endilega hvar þú ert staddur, heldur í hvaða átt þú ert að fara. Þú ert sá sem velur leiðina og ert í ökumannssætinu. Það er aldrei of seint að breyta leiðinni.

4    Elskarðu og ertu þakklátur fyrir lífið? Ég hef sannreynt að ef ég er þakklátur og elska lífið, þá mun það elska þig á móti. Það kostar ekkert að reyna.

5    Hvernig leitarðu að hamingjunni? Demantarnir þínir eru ekki hátt upp á fjöllum eða hinu megin við lækinn, þeir eru í þínum eigin garði. Það eina sem þú þarft að gera er að grafa eftir þeim, skoða inná við í hjartað þitt og þinn innri kjarna. Því dýpra sem þú grefur því betra.

Þegar við sjáum hamingjuna í að lifa lífinu í augnablikinu, gera það sem við elskum, ástunda þakklæti, vera trú sjálfum okkur, ekki taka hlutina persónulega, tala og umgangast aðra með kærleika, gefa okkur ekki einhverjar ákveðnar forsendur og gera alltaf okkar besta. Munum við líkega upplifa sanna hamingju daglega.  Miguel Ruiz


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband