Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Viðhorf

Viðhorf, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt, er smitandi; svo hvora útgáfuna ertu að breiða út? Að vera neikvæður tekur auka orku, sem þú gætir annars verið að beina að þinni upphalds iðju.  Í stað þess að vera að sá misklíð hvar sem þú ferð, lærðu hvernig þú átt að rækta með þér umburðarlyndi í stað óþolinmæði,  bjartsýni í stað svartsýni  og þakklæti frekar en vanþækklæti.

Hér eru nokkrar leiðir til að koma þér af stað.


1. Kæfðu neikvæðar hugsanir í fæðingu. Bældu niður tilfinningar um svartsýni, sjálfsefa, kvartanir, væl og almenna neikvæðni strax í byrjun.  Annars eru þær eru líklegar til að taka yfir líf þitt og eitra sambönd þín.

2. Hættu að hafa áhyggjur af öllum hlutum. Í stað þess að hafa áhyggjur af hlutum sem þú getur ekki stjórnað, búðu þér til mynd í huganum þar sem þú og þínir eru sigurvegararnir. Að hafa áhyggjur af hlutum sem þú getur ekki haft stjórn á, er ávísun á farmiða aðra leiðina  á geðdeild.

3. Hlustaðu á hvað reiðin er að kenna þér. Reiði er þróað verkfæri sem heldur okkur öruggum.   Þess vegna skaltu bregðast við með varúð. Í stað þess að sleppa sér lausum, vertu athugull varðandi það  hvað hún er að reyna að segja þér.

4. Lærðu að glíma við tilfinninga hlaðnar aðstæður. Bara að vera í kringum sumt fólk gerir þig þreyttan. Aðrir eru hranalegir og bráðlyndir. Það getur verið nauðsynlegt að stilla af þín eign viðhorf til að geta brugðist rétt við sérvisku annarra.

5. Veldu að vera bjartsýnn.  Þó við gerum ráð fyrir að öllum grunnþörfum þínum sé fullnægt er  hamingja  valkostur. Það er sagt að svartsýnismaður gleymi að hlæja og að bjartsýnismaður hlægi til að gleyma. Hafðu yfirsýn yfir hlutina. Mundu að hlutirnir geta alltaf verið verri!

6. Skoðaðu allt það sem þú hefur. Ekki sína heiminum vanþakklæti. Hættu að kvarta yfir því sem þú hefur ekki og byjaðu að telja upp allt það sem þú hefur. Að telja allt upp, allt það góða sem þú hefur, getur verið tafarlaust orkuskot.

7. Ræktaðu með þér þolinmæði gagnvart öðru fólki. Ágreiningur við aðra getur skemmt viðhorf þitt og sogið frá þér orku. Gerðu þér grein fyrir að við erum öll misjöfn og neyddu sjálfan þig að að finna aðeins einn hlut sem þér líkar við þann sem er að valda þér gremju.


8. Ekki reyna að ofurskilgreina aðra. Það er ekki alltaf dulinn ástæða á bakvið það sem fólk gerir, svo ekki eyða tíma og dýrmætum krafti með því að sálgreina þá sem eru að trufla þig.

Í stað þess að vera orkuþjófur sem sogar lífskraftinn frá öðrum, lærðu hvernig þú getur fært þeim orku og gleði.  Að vera neikvæður, tekur raunverulega auka orku frá þér --- orku sem þú gætir annars beint  að þinni eftirlætis iðju.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband