Árangurskerfi velgengninnar
Ég ætla að skipta þessu upp í ákveðnar spurningar sem leiða þig í gegnum kerfið. Áður en ég deili þessum spurningum með þér, vil ég fara yfir nokkur mjög mikilvæg lykilatriði að þessu leyndarmáli, einungis til að hámarka útkomuna fyrir þig.
Fyrst af öllu, þá VERÐUR þú að skrifa niður öll svörin þín við spurningunum sem ég ætla að deila með þér. Kerfið mun EKKI virka ef þú ætlar að hafa þau einungis í huganum. Það hefur verið sannað hvað eftir annað að það er engan veginn eins árangursríkt að hafa þessar hugsanir einungis í huganum án þess að skrifa þær niður. Það er sem töfrum líkast að skrifa þær niður, þá fyrst verður markmiðið og draumurinn raunverulegri. Hugsaðu út í það, að allt sem einhverntímann hefur komið til greina, hefur með einum eða öðrum hætti, verið ritað niður fyrst og síðan mótast og orðið raunverulegt. Já hugsanir koma fyrst, en þegar þessar hugsanir eru skrifaðar niður, þá fyrst fara þær að taka á sig form og verða raunverulegri. Svo skilaboðin eru skýr, SKRIFAÐU hugsanir um drauma þína og markmið niður.
Í öðru lagi, þetta einfalda árangurskerfi velgengninnar, virkar miklu betur ef þú skrifar eða lest yfir svörin þín áður en þú ferð að sofa, eða hefur það fyrsta verkefni sem þú gerir þegar þú vaknar á morgnana. Ég trúi að það hljóti að vera til einhverjar vísindalegar skýringar á því. Allavega það sem mér fannst skipta mestu máli fyrir mig við þessa tvo tíma, er að undirmeðvitundin er móttækilegust og aðgengilegust á þessum tíma. Hugsaðu út í það, þegar þú ferð að sofa þá fær undirmeðvitundin 5-8 tíma (lengur fyrir svefnpurkurnar) til að melta frekar þau afrek sem þú ætlar að ná næsta dag. Það er ansi langur tími og enn betra, þetta er sá tími sem þú ert yfirleitt í mestri afslöppun. Ef þú gerir þetta á morgnana, þá er það morgunþokan, þegar rökvísa hugsunun er ekki kominn í gang og undirmeðvitundin er ennþá opinn, aðgengileg og úthvíld. Það er á þessum tíma sem þú segir undirmeðvitundinn, „það er svona sem ég vil láta daginn minn líta út“ og undirmeðvitundin mun byrja á að gera allt sem hægt er til að svo verði. Svo, hvernig væri því að láta undirmeðvitundina vita nákvæmlega hvernig þú vilt láta daginn þinn líta út. Líttu á sjálfan þig eins og handritahöfund, og þú ert að skrifa handrit af fullkomnum degi.
Í þriðja lagi, hugleiddu þessar spurningar:
Í starfi:
- Hver er 5 mest áríðandi verkefnin mín í vinnunni?
- Hver eru 5 miðlungs áríðandi verkefnin mín í vinnunni?
- Hver eru 5 minnst áríðandi verkefni mín í vinnunni?
- Mest áríðandi símtölin mín í dag eru......
- Mest áríðandi tölvupóst skilaboðin mín í dag eru.....
Persónulega:
- Hver eru 5 mest áríðandi atriðin sem ég ætla að gera fyrir mig í dag?
- Hver eru 5 mest áríðandi atriðin í persónulegum samskiptum sem ég ætla að ná í dag?
- Hvað ætla ég að láta gott af mér leiða í dag, sem nýtist öðrum?
- Fyrir hvað er ég þakklát/ur í dag?
Þú getur fyllt þennann lista út í draumaborðunum á www.velgengni.is. Þegar þú ert búinn að fylla listann út, skoðaðu hann reglulega yfir daginn. Það er mjög áhrifaríkt að setja einnig mynd sem tengist verkefninu/markmiðinu.
Þetta þarf ekki að taka langan tíma, jafnvel ekki lengur en 10 mínútur. Leyndarmálið á bak við það að þú fáir þær niðurstöður sem þú leitar eftir eru byggðar eftirfarandi forsendum.
Í fyrsta lagi, skrifaðu niður markmið þín.
Í öðru lagi, farðu yfir listan á morgnana þegar þú vaknar, eða á kvöldin áður en þú ferð að sofa.
Í þriðja lagi, hafðu listann aðgengilegan þannig að þú getir haft möguleika á að skoða hann yfir daginn.
Að lokum, og mest áríðandi, kláraðu mest áríðandi verkefnin FYRST, áður en þú byrjar á einhverju öðru. Gerðu þetta og sjáðu að árangurinn lætur ekki á sér standa.
Ég vona að þessar leiðbeiningar gagnist þér og að þú náir að nýta þér verkfærin sem eru á www.velgengni.is til að ná árangri.
Gangi þér vel að njóta velgengni í lífinu.