Hamingja er val
Okkar endilega frelsi er réttur og vald til að ákveða hvernig og hvað sem er utan okkur sjálfra hefur áhrif á okkur.
Þetta er öflugt frelsi. Og frá mínum bæjardyrum séð, getum við líka séð það þannig að þetta endanlega frelsi er réttur okkar og vald til að ákvarða okkar eigin ásetning:
Til að vernda okkur gagnavart sársauka með meðvitaðri hegðun.
Til að læra hvað þýðir að við elskum okkur sjálf og aðra.
Þegar ásetningur okkar er að læra um ást, það er þegar við ákveðum hvernig aðrir eða hegðun annarra hefur áhrif á okkur.
Ef ásetningur minn er að stjórna því hvað öðru fólki finnst um mig, kemst ég í uppnám t.d. ef ég upplifi að því líki ekki við mig. Ég mun jafnvel upplifa höfnun eða tilfinningu um að vera ekki verðugur. Ég hef semsagt gert þau ábyrg fyrir hvernig ég er upplifa verðleika minn, sem þá þýðir að ég verð að reyna að stjórna hvað þeim finnst um mig, með því að vera fullkominn, vera skemmtilegur, gera allt rétt, segja alla réttu hlutina, líta flott út, koma rétt fyrir og svo framvegis. Það er mjög erfitt að lifa lífinu þannig.
Þegar ásetningur minn er að umvefja sjálfan mig kærleika og ást, þá geri ég ekki aðra ábyrga fyrir því hvernig ég upplifi að vera verðugur. Í staðinn skilgreini ég hver ég er, hvers vegna ég er verðugur – ekki út frá útliti mínu eða frammistöðu – heldur frá mínum eðlislægu kostum af hluttekningu, kærleika, umhyggju,skilningi, sköpun, þolinmæði, góðsemi og svo framvegis. Ég læri að skilgreina sjálfan mig.Ekki út frá sem ég held að aðrir vilji að ég sé, heldur í gegnum sýn frá mínu æðra sjálfi. Ef einhverjum líkar ekki við mig, tek ég það ekki persónulega, því ég samþykki að ég hef enga stjórn þá því hvernig eða hvað þau upplifa, og það er ekki mér til góðs að taka þeirra hegðun persónulega.
Þegar ég einbeiti mér að því að elska sjálfan mig og síðan deila ást minni og kærleika með öðrum, þá er hegðun mín þannig að það veitir mér gleði. Þó svo að eitthvað sársaukafullt atvik snerti mig, þegar ásetningur minn er að elska sjálfan mig og umvefja mig kærleika, þá er ég fljótur að færast yfir í skilning með mínum eigin tilfinningum, kalla fram öryggi frá mínu innra sjálfi, sem hjálpar mér að komast í gegnum, einmannaleikann, trega, ástarsorg, harm, söknuð, eða sorg tengdan atburðinum.
Allt þetta veltur á því hverjum ég gef öðrum vald yfir líðan minni, atvikum eða einstaklingum. Þegar ég gef atvikum eða einstaklingum vald, þá er ég orðinn fórnarlamb af hegðun eða skoðun annarra eða kringumstæðum. Þegar ég gef valdi yfir til innra sjálfs, þá hef ég alltaf aðgang að eigin sannfæringu, friði og gleði.
Hamingja mín eða eymd er mitt val, og það veltur endanlega á ásetningi mínum – sem er mitt val um eigin frjálsa vilja.
Á því augnabilki þegar ásetningur minn er að stjórna einhverju sem ég get ekki haft neina stjórn á, einhverju sem er ógerlegt fyrir mig hafa áhrif á, þá skapa ég eymd. Hvort sem ég reyni að stjórna sársaukanum með mismunandi deyfingu, fíkn, til að reyna að byggja undirstöðu eða komast áfram. Eða reyni að stjórna tilfinningum mínum með því að fá viðurkenningu annarra. Reyna að stjórna öðrum eða niðurstöðum með hegðun sem er ekki heiðarleg og ekki kærleiksrík gagnvart mér eða öðrum, þá skapa ég sjálfum mér óhamingju. Að vinna þannig að því að réttlæta einhverjar rangar gjörðir, mun aldrei veita þér gleði.
Á því augnabliki þegar ásetningur þinn er að bera virðingu, kærleika og ást gagnvart sjálfum þér og öðrum, þá munt þú umgangast sjálfan þig, aðra og umhverfið á þá leið að það er í samræmi við þinn æðsta tilgang, þinn innri kjarna, frá hjartanu. Kærleiksrík hegðun gagnavart sjálfum þér og öðrum mun alltaf færar þér innri tilfinningu gleði og hamingju.
Þegar þú hefur ásetning þinn að elska sjálfan þig og aðra, umvefja kærleika og umhyggju, þá finnur þú hvernig þú upplifir persónulegt sjálfsöryggi, heiðarleika og tengingu við þína innri visku, sannleika og gleði.