Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Finndu ástina

Það er frábær tilfinning að finna ást í lífinu, að elska og vera elskaður.

Valentínusardagurinn er skemmtilegur siður sem við höfum tekið upp eftir bandaríkjamönnum.  Það eru samt skiptar skoðanir á þessu, mörgum finnst þetta algjör óþarfi og tóm vitleysa að apa þetta upp. Það jákvæða er að þessi dagur setur ástina í fókus. Fær okkur til að staldra við og hugsa um ástina og þá sem við elskum.  En ástarörin finnur ekki leiðina að hjarta allra. Sumir vilja ekki ást, aðrir vilja ekki hleypa henni að sér og svo eruð enn aðrir sem elska ekki sjálfan sig nógu mikið, þannig að þeir hugleiði yfirleitt að elska einhvern annann.

Sumir kvíða  Valentinusardeginum, meðan aðrir hlakka til og njóta þess að gera sem mest úr þessu tilefni. Enn aðrir spá ekkert í daginn og taka ekki eftir umstanginu hjá öðrum.
 
Ást er ein af grunnþörfum mannsins.  Það er eðlilegt og í lagi að vilja hafa ást sem hluta af lífinu.  En það er líka eðlileg tilfinning að upplifa andstæðu þess að vera elskaður,  sem er einmannaleiki, kvíði og þunglyndi.
 
Væri ekki upplagt að setja fókusinn á þig á Valentínusardaginn í ár.
Elskaðu þig og gerðu eitthvað fyrir sjálfan þig.  Til að finna ástina, þá þarftu að byrja á að elska sjálfan þig.  Svo brostu, skoðaðu sjálfan þig gaumgæfilega innan frá og uppgötvaðu allt sem þú elskar.
 
Þegar þú byrjar að elska sjálfan þig, þá mun ástin koma inn í líf þitt. Ef þú ert tilbúinn að hefja ferðina til að finna ástina sem þú þarft, þá eru hér 10 samtöl sem þú getur átt með sjálfum þér.  Ég er nokkur öruggur með að þessi „10 samtöl“ um ástina, munu færa þér innri frið og senda þig af stað í nýjar áttir til að finna ástina sem þú þarft og átt skilið.
 
 
1.       Elska ég og virði ég sjálfan mig?
Þú getur ekki elskað neinn, nema þú elskir og virðir sjálfan þig. Staldraðu við og spyrðu sjálfan þig „hvað elska ég við sjálfan mig og hvað er það sem ég virði við sjálfan mig?“ og „hvað er það sem ég elska og virði við hinn aðilann?“ (hinn aðilinn gæti t.d. verði maki).
 
2.       Hef ég elskandi hugsanir?
Ástin byrjar í huganum. Við verðum það sem við hugsum um. Elskandi hugsanir leiða okkur í elskandi upplifanir og ástríkt samband.
 
3.       Getur þú gefið af þér?
Ef þú vilt meðtaka ást, þá verður þú að geta gefið ást. Að elska er að gefa sig af frjálsum vilja og án skilyrða.  Hamingjusöm, langlíf og ástrík sambönd snúast alltaf um hvað þú gefur af þér ekki hvað þú vilt fá.
 
4.       Erum við vinir?
Til að finna sanna ást, þá þarft þú fyrst að finna sannan vin. Þú verður að elska einhver eins og hann er. Mundu að vinskapurinn er jarðvegurinn þar sem fræ ástarinnar vex. Byggðu upp sanna vináttu og sambandið mun endast út lífið.
 
5.       Get ég rétt út hendin og snert?
Snerting er ein öflugasta tjáning ástarinnar. Það brýtur niður hindranir og treystir böndin og jákvæði samskipti.  Snerting opnar hjartað þitt til að gefa og meðtaka ást.
 
6.       Get ég sleppt?
Jafnvel í ástríkum samböndum, þá þurfa aðilarnir sitt eigið svæði, sinn eigin tíma. Ást þýðir að fyrirgefa, láta af ótta, fordómum, stolti og fyrri sárindum.
 
7.       Get ég átt opin samskipti?
Að elska einhvern, er að geta átt opin og hreinskilin samskipti við hann.
Segðu þeim sem þú elskar að þú elskir hann og kunnir að meta hann. Vertu aldrei hræddur við að segja „Ég elska þig“. Það eru ólýsanlegir kraftar og töfrar innifaldir í þessum þremur orðum, þegar þau eru sögð í einlægni og frá hjartanu.
 
8.       Get ég skuldbundið mig?
Ef þú vilt ást, þá verður þú að vera tilbúinn að skuldbinda þig við hana og sú skuldbinding verður að endurspeglast í hugsunum þínum og aðgerðum.
Skuldbinding þýðir að uppgjöf er ekki valkostur. Í  ástríkum og laglífum samböndum þá er skuldbinding gagnkvæm.
 
9.       Er ástríða til staðar?
Ástríða tendrar ástina og heldur henni á lífi.  Varanlega ástríða kemur ekki einvörðungu frá áhuga á ytra útliti; hún kemur af djúpri skuldbindingu, ákafa, áhuga, eftirvæntingu, óvæntum jákvæðum uppákomum og samskiptum. Bjóddu ástinni inn í líf þitt, með því að lifa hvern dag með ástríðu.
 
10.   Get ég treyst?
Traust er grundvallaratriði í öllum ástríkum samböndum. Án trausts þá verðum við tortryggin, kvíðin og hrædd og hinn aðilinn upplifir sig fastan og að kafna tilfinningalega.  Þú getur ekki elskað neinn algjörlega nema að treysta honum algjörlega.
 
 
„Ást er alltaf gefin án skilyrða, af fullkomnum vilja og án væntinga.  Við elskum ekki til að verða elskuð, við elskum til þess að elska.“ Leo Buscaglia.
 
 
 
 
Njóttu velgengni og ástar í þínu lífi.
 

 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband