Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Jákvæðni

Ef þig langar að ná oftar árangri á öllum sviðum lífsins, þá verður þú að tileinka þér jákvæða hegðun. Hér eru sjö leiðir sem þú gætir nýtt þér.

1.       Skapaðu jákvæða sjálfsímynd með því að tala við sjálfan þig.  Sjálfsímynd þín er sá einstaklingur sem þú heldur að þú sért. Þú ert þín eigin sköpun. Þegar sjálfsímynd þín er lág, þá laðar þú inn í líf þitt fullt af upplifunum og aðstæðum sem segja þér hversu lélegur þú ert.  Gagnstætt, þegar sjálfsímynd þín er há, þá laðar þú inn í líf þitt upplifun og aðstæður sem segja hversu frábær þú ert.  Einfaldasta leiðin til að skapa þá sjálfsmynd sem þú vilt er  að tala við sjálfan sig. Einfaldlega stjórnaðu masinu inn í höfðinu á þér.  Styrktu baráttuandann þinn reglulega, á morgnana, um miðjan daginn og á kvöldin með því að tala við sjálfan þig.

2.      Talaðu við sjálfan þig með jákvæðum markmiðum. Hugurinn okkar þarf myndir af jákvæðum markmiðum til að vinna að. Hann ruglast í ríminu ef við erum með neikvæð markmið.  Ef þú ert t.d með markmið um að hætt að reykja, ekki segja:  " Ég vil hætta að reykja." Segðu t.d. í staðinn "Ég vil njóta góðs kvölds með því að fá mér ferskan svalandi drykk, anda að mér fersku, hreinu og tæru lofti."

3.       Hafðu jákvæðar væntingar. Margar tilraunir staðfesta sannleikann um að þegar þú væntir hins besta, þá færðu vanalega það besta, og þegar þú væntir þess versta, þá færðu það vanalega.  Þetta er þekkt sem lögmálið um sjálfsósk, þú færð yfirleitt óskir þínar uppfylltar, svo passaðu hvers þú óskar þér.

4.       Endurskoðaðu alltaf skilyrðislaust.  Ef við erum jákvæð í upphafi á verkefni, eigum við að vera jafn jákvæði í endann þegar við lítum til baka.  Margt fólk missir kjarkinn þegar hlutir ganga ekki eins og við höfðum planað og þau refsa sjálfum sér fyrir þennan eina hlut sem ekki gekk upp. En það eru alltaf dýrmæt tækifæri í öllum aðstæðum, jafnvel í augljósum mistökum, ef við aðeins skoðum þau nægjanlega vel. Ein leiðin til að skoða skilyrðislaust er að nota uppbyggjandi setningar í stað niðurdrepandi setningar. Þannig að fyrirstaða er ekki "hindrun" heldur "áskorun"; bakslag er ekki "hörmung" heldur " tækifæri til að læra"; og erfitt vandamál er ekki "óyfirstíganlegt" heldur  "verkefni til að leysa".

5.       Reyndu að umgangast jákvætt fólk. Eitt að því sem dregur mest úr eldmóði okkar er að umgangast fólk sem er neikvætt.  Þau vilja eflaust vel með aðvörunum sínum en oft eru þær byggðar á misskilningi.  Þú hefur tvo valmöguleika ef þú vil lifa sem jákvæður einstaklingur; forðastu neikvæða einstaklinga eða leiðbeindu þeim.  Ein frábær leið til að leiðbeina neikvæðu fólki er að hunsa það þegar þau byrja samskipti sem draga úr þér kjarkinn.  Einfaldlega útilokaðu þau. Og þegar þau snúa aftur í jákvæða umræðu, endurtengdu.  Fljótlega læra þau að þú ert einstaklingur sem hefur jákvætt viðhorf og þau munu einfaldlega hætta þessari niðurdrepandi samskiptum við þig.

6.       Nýttu þér jákvæðni fyrir góðri heilsu. Emile Coue, einn af þeim sem var frumherji í sjálfvirkum vísbendingum, kom fram með nokkrar rannsóknir sem staðfestu að jákvæð hugsun getur ráðið bót á bæði líkamlegum og andlegum verkjum. Í einni rannsókn um langlífi sem George Gallup gerði var ein niðurstaðan að jákvætt viðhorf var eitt af lykilatriðum sem skiptu miklu um langlífi.  Fleiri nýrri rannsóknir hafa sýnt neikvæð áhrif á  heilafrumur undir áhrifum frá neikvæðri hugsun, á meðan jákvæð hugsun raunverulega breytir samsetningu frumanna í líkamanum til hins betra .  Sem sýnir að jákvæð hugsun er oft betri heldur einhver lyf sem þú kaupir úti í apóteki, þó svo alls ekki sé verið að hvetja til þess að hætta að taka lyf, sérstaklega sem gefin eru með læknisráði. En jákvæð hugsun hjálpar og ef hún er ástunduð getur hún oft verið fyrirbyggjandi og til bóta.

7.       Að byggja upp jákvæða hegðun.  Það er eins auðvelt að skapa jákvæða hegðun eins og neikvæða. Það er einfaldlega val og endurtekning. Þannig að ef þú vilt jákvæða ávana inn í líf þitt, framkvæmdu þessi atriði hvern dag.

- Vertu snyrtilegur til fara.

- Brostu meira.

- Reyndu í einlægni að umbera aðra

- Segðu eitthvað jákætt við  aðra, hrósaðu í einlægni

- Vertu þakklátur fyrir allt sem þú færð

Jákvæðni er ekki að vera í Pollýönnu leik alla daga, horfa á hlutina með því að útiloka raunveruleikann, heldur er það val um hvernig við hugsum, framkvæmum og tölum sem skapar raunveruleikann. Ef við framkvæmum þannig, þá uppgötvum við kraftaverkin.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband