Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Merktu við og skráðu hvernig gengur.

Mannstu eftir því þegar þú varst lítill og mamma og pabbi voru að mæla hæðina með nokkurra mánaða millibili.  Margir höfðu sérstakan stað þar sem strikað var á vegg eða hurðarkarm.  Þetta var eitthvað sem var sýnilegt, lét þig vita hvar þú stóðst, hvernig þú smásaman nálgaðist framtíðar markmiðið (sem yfirleitt var að verða jafnstór og mamma eða pabbi.) Árangurinn varð allt í einu sýnilegur fyrir þér. Þetta hvatti þig til að borða hollan mat og drekka mjólkina þína svo þú myndir vaxa.

Fólk sem nýtur velgengni notar nákvæmlega sömu aðferð til að mæla stöðugt árangur sinn.  Það nær frábærum árangri með jákvæðu viðhorfi nær það markmiðum sínum og getur gert það sem það langar til.
Í bókinni „The Game of Work“ eftir Charles Coontradt segir að það að mæla og merkja árangur sinn, hvetur mann til þess að ná jákvæðum niðurstöðum í því sem maður er að mæla.  Það raunverulega styrkir þá hegðun okkar sem leiðir til þessarar jákvæðu niðurstöðu.
Hugsaðu um það. Þín eðlilega tilhneiging verður að bæta alltaf niðurstöðuna. Ef þú værir alltaf að mæla þau 5 atriði  sem mest skiptir þig máli í persónulegu lífi og starfi,  ímyndaðu þér hversu mikil hvatning það væri í hvert sinn sem þú sæir framfarir.

Mældu það sem þú vilt,  ekki það sem þú vilt ekki.

Úr bókinni The Success Principles eftir Jack Canfield, birt með leyfi höfundar.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband