Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Yfir 500 ákváðu að gera 2008 að tímamótaári í sínu lífi.

Mikill fjöldi einstaklinga sótti ráðstefnu Jack Canfield í Háskólabíói þann 2. febrúar 2008, sem haldin var á vegum www.newvision.is .  Jack Canfield   sem er án efa  einn allra besti og eftirsóttasti árangurs- og leiðtogaþjálfari heims í dag, var með  dagsnámskeið um það hvernig bæta má árangur og auka sjálfstraust og njóta velgengni í lífinu.  Jack er í hópi vinsælustu fyrirlesara Bandaríkjanna ásamt mönnum eins og  Bill Clinton, Lance Armstrong og Anthony Robbins. Jack er með masters gráðu í sálfræði frá Harvard og hefur þjálfað athafnamenn og stjórnendur í meira en þrjátíu ár með frábærum árangri. Hann er maðurinn á bak við "Chickensoup for the soul" viðskiptaveldið sem New York Times kallaði viðskiptaundur síðasta áratugar og er því einstaklega hæfur til þess að fjalla um velgengni. Jack er einn af kennurunum sem koma fram í heimildamyndinni "The Secret" sem verið hefur afar vinsæl á Íslandi undanfarna mánuði

Flestir ef ekki allir sem að mættu á námskeið Jack Canfield þennan fóru heim glaðir í bragði og undrandi á því hvernig dagurinn gat verið svona fljótur að líða. Dagurinn var einstaklega fræðandi, skemmtilegur og hvetjandi. Það er nokkuð öruggt að margir hafa sett sér ný og háleit markmið og eru nú þegar byrjaðir að breyta sínu lífi til betri vegar. Jack stóð alveg undir væntingum og jafnvel rúmlega það. Hann snerti fólk með hlýju sinni og einlægni og var um leið fyndinn og skemmtilegur.  Eftir þessar frábæru viðtökur frá þeim sem nutu þessa dags í háskólabíói, þá mun Kristján Viðar hjá www.newvision.is halda ótrauður áfram og stefnt er að því að fá fleiri þekkta og öfluga fyrirlesara síðar á árinu.

Á þessum eina degi náði Jack að fara yfir ótrúlega mikið efni, sem sett var fram með mjög auðskiljanlegu og aðgengilegu formi.  Meðal efnis sem lagt var áherslu á var mikilvægi þess að setja sér skýr markmið og skrá þau niður.  Setja upp sín drauma- og markmiðaborð, skilgreina vel fyrir sér hvernig hvernig maður vill láta líf sitt líta út. Á www.velgengni.is er hægt að fá ókeypis aðgang að drauma- og markmiðaborðum, setja þau upp á sínu einkasvæði markmið sín  með texta og myndum og  varða leiðina til að ná markmiðinu sínu. Auk þess sem þar eru mikið af greinum og viðtölum sem lúta að því að ná velgengni á öllum sviðum lífins, aðgangur að ráðgjöfum og spjalli við aðra notendur. Einkunnarorð www.velgengni.is er „Velgengni byrjar innan frá – Skapaðu þína eigin framtíð – Tækifærið þitt er í dag.

Fólk sem nýtur mikillar velgengni, setur sér markmið.

Þrátt fyrir fréttir um samdrátt og niðursveiflu í efnahagslífinu, þá heldur fólk sem nýtur mikillar velgengni áfram að njóta velgengni. Hvers vegna,  vegna þess að þetta fólk heldur áfram og setur sér markmið. Það er jákvætt, sjálfsöruggt og ákveðið í að njóta velgengni, það lætur ekki atburði sem eru að gerast í kringum það trufla sig.  Þetta fólk lætur ekki utanaðkomandi aðstæður stoppa sig af.  Þetta fólk heldur áfram að vera jákvætt og leitar að nýjum og breyttum leiðum til þess að njóta velgengni og ná árangri í lífinu.

Annað lykilatriði í velgengni er einnig að vera duglegur í að spyrja.

Þú verður að spyrja. Að spyrja, er líklegast eitt öflugasta en líka vanmetnasta leyndarmál velgengni og hamingju. 

Sagan er full af dæmum um fólk sem notið hefur gífulegrar velgengni í lífinu, náð alveg ótrúlegum árangri, með því einfaldlega að spyrja spurninga.  Því er það alveg ótrúlegt, að það að spyrja sem er ein öflugast leiðin til að ná árangri og njóta velgengni, sé ennþá áskorun sem heldur aftur af flestu fólki. Ef þú ert ekki hræddur við að spyrja hvern sem er um hvaða hlut sem er, þá getur þú hætt að lesa núna.  En ef þú ert eins og flest fólk,  þá gæti verð að þú værir að halda aftur af þér með því að vera ekki að leita eftir upplýsingum , aðstoð, stuðningi, peningum og tíma, sem þig vantar til að láta drauma þína rætast.

HVERS VEGNA ER FÓLK HRÆTT VIÐ AÐ SPYRJA
Hvers vegna er fólk hrætt við að spyrja? Það eru margar ástæður fyrir því eins og að vilja ekki sýnast þurfandi eða að halda að það sé heimskulegt.  En í flestum tilfellum er það af hræðslu við að vera hafnað.  Fólk er hrætt við að fá svarið NEI.
Það sem er sorglegast er að með því er í raun verið  að hafna sjálfu sér fyrirfram.  Það er að segja nei við sjálft sig, áður en nokkur annar hefur fengið möguleika á að því að svara.

Newvision stefnir að því að fá til landsins fleiri öfluga og áhrifaríka fyrirlesara og kennara og möguleiki er á að Jack muni koma aftur til landsins, en eftir námskeiðið á laugardaginn bárust fjölda fyrirspurna um það.

Ef þú þarft frekari upplýsingar um það hvers vegna niðurskrifuð markmið eru svona mikilvæg til að njóta velgengni. Þá getur þú nálgast frekari upplýsingar og fróðleik inni á www.velgengni.is .  Ef þér finnst eitthvað vit í þeim leggðu þá af stað ákveðnum skrefum, ef ekki þá mun lífið þitt verða áfram eins og það er og tíminn renna hjá.
Svo ef það er velgengni sem þú ert að leita eftir, þá er leyndarmálið einfalt, taktu skrefið og kynntu þér hvernig aðrir hafa notið velgengni í lífi sínu og taktu upp þá hegðun.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband