Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Líkamsræktar – rútan

Hér er ein skemmtileg viðskiptahugmynd, sem kemur frá Rio de Janeiro.  Bus Bike er líklega fyrsta líkamræktarstöðin á hjólum í heiminum.   Bus Bike lausnin er hópferðarbíll sem er sérstaklega útbúin til að bjóða uppá innanhúss hjólatíma.  Farþegarnir kaupa sér mánaðarkort, nýta tímann sem fer í að ferðast á milli til að taka æfingu.  Í bílnum er þjálfari sem stjórnar tímanum, 16 hjól, skiptiklefi, kæliskápur og öflugt hljóðkerfi.
Væri hentugt fyrir líkamsræktarstöð sem vill útvíkka þjónustuna og bjóða uppá líkamsræktarferð fyrir t.d. fólk sem býr á Selfossi eða Hveragerði og vinnur í Reykjavík.  Taka æfingu á leiðinni í vinnuna á morgnana,  frábært upphaf á nýjum degi og góð nýting á tíma.

Nánar er hægt að skoða á  www.busbike.com.br
 
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband