Hvernig á að setja sér markmið og ná fullkomnum árangri.
Þegar fólk segir við mig:
- Mig langar að fara eitthvað, en ég veit ekki hvert
- Mig langar að gera eitthvað, en ég ekki það sem ég er að gera
- Ég veit ekki hvað mig langar og ef þér finnst ég ráðvilltur, þá er það einmitt hluti af vandamálinu.
Ég segi við þetta fólk, „settu þér markmið.“
Það segir, „ Ég veit, ég hef engin markmið. Hvernig næ ég í markmið?“ Ég spyr þau hvað þau langar til að gera. Og þau segja oft, „Ég veit ekki.“
Þú hefur verið í þessum sporum ekki satt. Við höfum öll verið það. En á endanum komumst við flest af stað.
Við höfum öll í okkur hæfileika til að ná árangir, við þurfum einfaldlega að læra að virkja hann. Það er staðreynd að ef við lærum að nýta okkur þennan hæfileika, þá getum við notið velgengni bæði í starfi og einkalífi frekar skjótt. Hér er einfaldar leiðbeiningar sem hjálpa þér.
Hvernig á að setja sér markmið og ná fullkomnum árangari í starfi og einkalífi.
1. Vertu einlægur og heiðarlegur við sjálfan þig. Skoðaðu heiðarlega hvar þú ert staddur, hvert þú ert að stefna og hver þú vilt verða.
2. Hafðu skilning á markmiðum þínum. Þeir sem ná markmiðum sínum í starfi og einkalífi, hafa skilning á þeim markmiðum sem þeir vilja ná og hvað er nauðsynlegt að gera og framkæma til að ná þeim.
3. Þú verður að öðlast hugrekki til að takast á við það sem þú óttast. Ef þú vilt færast yfir á næsta áfanga til að ná markmiðum þínum, þá verður þú að vinna stöðugt í því að yfirvinna það sem þú óttast að gera. Láttu ekkert standa í veginum fyrir þér.
4. Deildu velgengni þinni. Þegar þú nærð markmiði, áttu ekki að njóta þess í sjálfelsku. Margt fólk getur notið hluta af velgengninni, -- kannski ekki alltaf í beinu sambandi, t.d. fjárhagsleg velgengni er ekki átt við að þú eigir að gefa peningana til annara, þú getur deilt með öðrum reynslu eða með einhverjum hætt látið aðra njóta.
5. Byggðu upp eldmóð. Þegar þú ert fullur af eldmóð og ákafur, þá ertu stöðugt að vinna í markmiðum þínum. Þegar hindranir verða í veginum, þá notar þú eldmóðinn og ákafann til þess að yfirvinna þær. Sigraðu þessar hindranir, farðu í kringum þær, undir þær, í gegnum þær eða gerðu það sem er nauðsynlegt til að koma þér áfram í að ná markmiði þínu.
6. Vertu í jafnvægi. Það er nauðsynlegt að vera í góðu jafnvægi til að njóta velgengni. Þegar þú tekur ákvörðun um að framkvæma eitthvað, fylgdu því eftir. Það skapar jafnvægi.
7. Upplifðu velíðanartilfinningu velgengninnar. Þegar þú nærð markmiði, þá getur þú sagt, „ég nýt velgengni og ég er ánægður.“ Það þarf ekki að þýða að þú ætlir að láta staðar numið og að nú sé nóg komið, heldur getur þú sagt, „ Ég gerði þetta og ég er ánægður með niðurstöðurnar. Nú get ég haldið áfram með önnur markmið og nýtt mér það sem ég lærði til að ná enn betri árangri.
Hvort sem þú ert að vinna í að ná litlum eða stórum markmiðum, þá er leiðin að mestu leiti sú sama. Þú getur lært hvað er að skila þér árangri í minni markmiðum og yfirfært það yfir á stóru markmiðin.
Ein af stærri hindrunum í að ná markmiðum er að vera ekki með raunsæ markmið. Það skapar óánægju og dapurleika.
Byrjaðu því á að einbeita þér að minni markmiðum og byrjaðu að ná árangri og upplifa ánæguna. Það er nauðsynlegt að taka eftir þegar þú nærð minni markmiðum þínum bæði í starfi og einkalífi. Að ná þeim undirbýr þig undir að njóta velgengni og ná stóru markmiðunum.
7 lykilatriði sem gott er að hafa í huga þegar þú ert að búa til og vinna að því að ná markmiðum þínum.
1. Markmið þurfa ekki að vera þýðingarmikil, mikilvæg eða stórfengleg fyrir neinn nema sjálfan þig.
2. Markmiðin þín geta verið mjög einföld og auðveld. Þau geta fært þér mikla hamingju, gleði og ánægju þegar þú skoðar þau og hvað þau þýða fyrir þig.
3. Þegar þú ákveður markmið og skilgreinir það, hvort sem það tengist starfi eða einkalífi, byrjaðu þá fyrst á að ákveða að vera nægjanlega sveigjanlegur til að gera það sem þarf til að ná því eða ætlastu til að hlutirnir gerist nákvæmlega eftir þínu höfði.
4. Finndu út hvernig þú ætlar að mæla árangur þinn
5. Fylgstu með hvert stefnir. Ertu í raun að færast í rétta átt að ná markmiðinu.
6. Gerðu þér grein fyrir hvaða kunnáttu og þekkingu þú hefur og öðlstu sjálfstraust og styrk sem þú þarft til að ná markmiðum þínum. Jafnvel þó svo þú sért á réttri leið, ef þú nálgast markmið þín án sjálfstrausts, þá grefur þú undan sjálfum þér.
7. Sjáðu sjálfan þig fyrir þér fá það sem þú vilt og ná markmiði þínu. Sumt fólk sér sjálft sig fyrir sér í Ástralíu, en það sér sig ekki fyrir sér að fara á ferðaskrifstofuna og kaupa miðana. Sér ekki sjálf sig fyrir sig fara út á flugvöll, það er ekki búið að ákveða dagsetningu hvenær það ætlar að fara. Þessi óvissa mun hefta þig og þú munt ekki setja nauðsynlegan kraft í að ná markmiði þínu og það sem þig langar í.
Þegar þú setur þér markmið, hvort sem það er langtíma markmið eða eitthvað sem þú ætlar að ná strax – upplifðu þá sjálfan þig í aðstæðunum eins og þú sért búinn að ná því. Notaðu frjótt ímyndunarafl til að sjá þig öðlast markmiðið. Sjáðu sjálfan þig klára öll skrefin sem þú þarft til að ná markmiðinu. Láttu þessa draumsýn vera eina að aðgerðunum. Sjáðu það, hlustaðu, finndu, prófaðu það, gerðu allt sem þarf til að þú náir markmiði þínu.
Hafðu mynd af því sem þú vil ná reglulega fyrir framan þig og haltu stöðugt áfram. Það verður alltaf augljósara eftir því sem þú færist áfram. Allt sem þú þarft að gera er að hafa mynd af því sem þú vilt stöðugt fyrir augunum, hafa leiðina að markmiðinu skilgreinda og framkvæma næsta verkefni sem færir þig áfram að árangri.
Það er að lifa daginn í dag. Það er velgengni.