Viðskiptahugmynd - Barnafataleiga.
Þar sem nýburar vaxa uppúr fatastærð í hverjum mánuði fyrstu sex mánuði lífsins eða svo, þá kom þýska fyrirtækið Lutte-Leihen fram með þá hugmynd að opna barnafataleigu þar sem fólk greiðir fast mánaðargjald. Foreldrar geta valið á milli mismunandi stærða af samfestingum, nærfötum, náttfötum, útifatnaði og ýmsum fylgihlutum. Fatnaðurinn er sendu í pósti eða hægt er að sækja á þeim stöðum sem fyrirtækið er með útibú. Þegar barnið er vaxið uppúr fötunum, þá er hægt að skipta uppí næstu stærð fyrir ofan án aukagjalds.
Til að skoða frekar upplýsingar um þessa þjónustu er hægt að skoða vefslóð:
www.luette-leihen.de
maren.winter@luette-leihen.de