Viðskiptahugmynd – Færanleg hárgreiðslstofa.
Hárgreiðslustofa á hjólum, er nýjungin sem við kynnum í dag. HairPODs er færanlega, frístandandi bás með framúrstefnulegu útliti. Er með stækkanlegu gólfi og hliðum, þannig að hægt er að loka og læsa því yfir nóttina, síðan er bara opnað aftur næsta dag og starfsemin getur byrjað strax. Hin frábæra hönnun á HairPOD, inniheldur mjög gott geymslusvæði fyrir öll nauðsynleg áhöld, en að auki er sérstakur búnaður í gólfinu með öflugum sogkrafti sem sogar jafnóðum allt hár í burtu, þannig að hár liggur ekki á gólfinu eða dreyfist um nærliggjandi svæði. Best af öllu þá er hægt að staðsetja HairPOD á mörgum stöðum, eins og flugvöllum, verslanamiðstöðum, sjúkrahúsum, stórum vinnustöðum og svo mætti lengi telja. Það tekur aðeins um 3 – 4 klukkustundir að setja HairPOD upp í fyrsta skiptið og einungis þarf að tengja það við rafmagn.
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um HairPOD farðu þá á vefsíðuna
www.hairpod.co.uk
eða sendu email:
info@hairpod.co.uk