Viðskiptahugmynd – Námskeið til að kenna fólki á fullkomna GSM síma.
Frá því að fyrstu einkatölvurnar komu á markað – miljónir fólks hefur farið á námskeið, í t.d. tölfureikni, PowerPoint kynningum að eða til þess að geta nýtt sér þær betur. Núna þegar GSM símarnir eru að verða fullkomnari og með meiri möguleikum, eru aðilar að sjá ný tækifæri í því að bjóða námskeið til að fólk getu náð að nýta þessa nýju tækni enn betur. Mobile Mentor fyrirtæki á Nýja Sjálandi er byrjað að bjóða klukkustundar löng námskeið bæði í einkakennslu eða fyrir hópa, til að hjálpa fólki til þess að tileinka sér alla þessa nýjum möguleika sem þessi búnaður bíður uppá. Að auki þá eru þeir að bjóða uppá námskeið fyrir sölumenn GSM síma, þannig að þeir séu færari í að útskýra fyrir viðskiptavinum hvaða búnaður henti þeim.
Sumir eru mjög færir í því að tileinka sér þessa tækni strax, fara í gegnum alla valmöguleikana og tileinka sér þá, á meðan aðrir þurfa smá aðstoð til þess að geta nýtt sér þetta að fullu. Einn af fyrstu viðskiptavinum Mobile Mentor sagði: Allt sem þurfti var að einhver með þekkingu settist niður með mér í klukkutíma. Ég hafði prófað sjálfur, fengið sendar leiðbeiningar frá Vodafone, en þetta var of erfitt.
Mobile Mentor hefur haldið námskeið fyrir yfir 20.000 manns og segir að markaðurinn sé mjög stór og fyrirtæki eru mörg hver að færa sig meira yfir í þessa tækni og þá þarf fólk að vera fært um að tileinka sér hana.
Þú getur kynnt þér þetta frekar á vefsíðunni:
www.mobile-mentor.com
eða sent email á:
info@mobile-mentor.com