Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Hvernig mun líf þitt líta út eftir 10 ár ......

Hvernig mun líf þitt líta út eftir 10 ár ef allir þínir draumar verða að veruleika. Leystu ímyndunaraflið úr læðingi og láttu þig dreyma. Fjarlægðu allar fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hvað er mögulegt, fjarlægðu allar fyrirstöður sem snúa að aldri, menntun og peningum. Leyfðu þér að dreyma um leið og þú svarar eftirtöldum spurningum skriflega.

• Ef þú ættir töfrastaf og gætir sveiflað honum og óskað þér, hver yrði óskin?
• Hver ertu eftir 10 ár ef allir þínir draumar verða að veruleika? Hvaða persónueinkenni berðu með þér, hvaða ósiði ertu laus við, hvaða menntun og/eða reynslu ertu með og hvernig er staða þín í samfélaginu?
• Hvar ertu eftir tíu ár ef allir þínir draumar verða að veruleika? Ertu hér á landi, erlendis, í húsi, úti á túni, uppi á fjalli? Hvar er draumastaðurinn þinn?
• Hverjir eru hjá þér eftir tíu ár ef allir þínir draumar verða að veruleika? Er það sama fólkið og er hjá þér í dag? Hafa nýjir einstaklingar bæst í hópinn, t.d. nýr maki, börn, nýjir vinir o.s.frv.?
• Hvað hefur þú eignast eftir tíu ár ef allir þínir draumar verða að veruleika? Hver er fjárhagsstaðan? Áttu húsnæði, bíla, eða önnur efnisleg gæði sem þér þykja eftirsóknarverð?
• Hvernig mun líf þitt líta út eftir 10 ár ef allt verður fullkomið?

Með því að hugsa til tíu ára skilurðu hismið frá kjarnanum og einbeitir þér algjörlega að því sem skiptir þig mestu máli. Með því að skrifa niður drauminn í smáatriðum ertu að mála mynd með orðum. Ef þú hefur listræna hæfileika geturðu líka tekið þig til og málað myndina á striga eða blað. Leyfðu þér að dreyma og sjáðu hver niðurstaðan verður.

„Úr bókinni, Þú ert það sem þú hugsar, eftir Guðjón Bergmann.

Þú getur pantað bókina hjá okkur, verð til notenda velgengni.is  aðeins  1.790,- kr.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband