Stresshormón líkamans
Kortisól er hormón sem eflaust margir kannast við . Kortisól er eitt aðal streituhormón líkamans . Líkaminn framleiðir þetta hormón sem framkallast frá nýrnahettuberkinum þegar spenna og streita skapast einhverra hluta vegna út af ytri aðstæðum . Þegar langvarandi spenna/streita hefur verið viðloðandi í lengri tíma þá byrja þessir leiðindakvillar sem eflaust margir kannast við :
- Svefnleysi
- Angist
- Dægursveiflur
- Lystaleysi
- Stundum eykst þó matarlyst
- Ógleði
- .....eykur hættu á þunglyndi
Og líkamlegu breytingarnar einnig ..... :
- Hækkun kólestróls í blóði sem leiðir m.a. til losunar fitu út í blóðið sem kallar einfaldlega á hjarta og æðasjúkdóma !
Ég ætla núna að koma með þá fullyrðingu að líkamsrækt er besta aðferðin til þess að halda niðri þessum spennuvaldandi þáttum í lífi okkar , við fáum útrás þegar við hreyfum okkur og höldum þar með niðri hröðun Kortisóls út í blóðið vegna þess að ..........
........ Insúlín hormónið hamlar losun Kortisóls og losar það úr blóði ! Og eitt lykilatriði að vita með Insúlín að það er lykilhvati að fitubrennslu ef í grunninn er gáð.
Ef þið sjáið samhengið í þessu þá eruð þið á leiðinni út að hreyfa ykkur meira !
Björn Þór Sigurbjörnsson
einkaþjálfari / næringaráðgjafi
Sporthúsið
Um höfundinn:
Björn Þór Sigurbjörnsson hefur áralanga reynslu og góða þekkingu á öllu því sem kann að tengjast líkamsrækt. Björn hefur haldið fyrirlestra um efni tengd líkamsrækt og hugarfari. Björn Þór er einkaþálfari og næringaráðgjafi í Sporthúsinu Kópavogi.
Viljir þú hafa samband við Björn sendu honum þá póst
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar,senda fyrirspurn eða til að panta.