Fiskur ! - alla ævi
Lífsspeki Fisksins er auðskiljanleg, skýr og sönn. Frá því að heimildamynd og kennsluvídeó um fisksalana á Pike Place var gert hafa milljónir manna um allan heim notið góðs af fjölbreytilegu kennsluefni um Fiskinn. Fyrsta bókin um lífsspeki Fisksins sem heitir einfaldlega, Fiskur!, kom út á íslensku árið 2005.
Richard Sulpizio, forseti og aðalframkvæmdastjóri Qualcomm sagði um hana: „Bókin Fiskur! er ekki aðeins bók um viðskipti eða til að bæta andrúmsloftið og hvetja starfsmenn. Hún er bók um lífið. Hún er bók um hvernig við eigum að lifa í daglegu amstri okkar og hvernig við komum fram við fjölskyldumeðlimi, vini og náungann almennt. Með því að nota það, sem þú munt læra af bókinni, verður þú ekki aðeins betri stjórnandi, þú verður betri manneskja og það er mun mikilvægara.“
Ný bók, FISKUR! alla ævi, er væntanleg á íslensku. Hún er árangur af langri reynslu höfundarins, Stephens C. Lundins, en á fyrirlestraferðum hans um Fiskinn hefur fólk sagt honum sínar „Fiskisögur“ úr vinnunni, en bætti gjarnan við í trúnaði, “heyrðu, þetta efni um Fiskinn virkar líka heima!”
Fiskur! alla ævi er framhald af fyrstu bókinni og fjallar um hvernig sögupersónurnar, Mary Jane og Lonnie, takast á við vandamál í einkalífinu. Lífsspeki Fisksins er lykillinn að betra lífi. Lausnin er hvorki þrautalaus né sjálfgefin en bókin vekur lesandann til umhugsunar og gefur nýja sýn. Fiskurinn gagnast fólki á öllum aldri við ólíkar aðstæður í lífinu. Eitt af því sem fjallað er um í bókinni, Fiskur! alla ævi, og snertir flest okkar, er barátta sögupersóna við útþenslu mittisins og leiðir til að stöðva þá þróun.
Það vita flestir hvað ber að gera til að létta sig. Við vitum meira um megrun og höfum meira framboð af sérstöku fæði en nokkur önnur kynslóð. Samt erum við þyngst allra kynslóða og þyngjumst með degi hverjum. Það sem við vitum almennt um flesta matarkúra er að fólk hefur getað létt sig um tíma, en 95% þess þyngist aftur og bætir jafnvel á sig kílóum síðar. Við lestur bókarinnar rennur upp fyrir manni að þetta snýst ekki um fæðu. Við höfum næga þekkingu og gott aðgengi að hollum mat. Það gegnir furðu hve mikið maður veit um þetta efni, aðeins með því að fylgjast með. Fjölmiðlar hafa sérstaka umfjöllun um eitthvað heilsutengt og glanstímaritin fjalla reglulega um matarkúra og heilsu.
Menn geta verið sammála um að mikilvægasta markmið með heilbrigðri stjórnun á líkamsþyngd er ekki að léttast, heldur það að læra hvernig eigi að viðhalda þeirri þyngd sem maður vill halda. Skjótt þyngdartap og skjót þyngdaraukning gerir engum gott.
Það varðar þetta, „hver ertu verandi?“, sem Fiskurinn kemur til skjalanna . Með því að lesa bækurnar áttaði ég mig á því að samtímis sem ég er „GERANDI“ hef ég val um hver ég er „VERANDI“.
Við vitum öll meira en nóg um megrun og sum okkar hafa sannað það með því að léttast um tugi eða hundruð kílóa á ævi sinni. Það ætti að vera hægðarleikur fyrir flesta að gera stuttan tossalista yfir heilsusamlegt mataræði. En listinn sem slíkur er ekki nauðsynlegur. Í bókinni er dæmi um lista til eftirbreytni fyrir þá sem vilja. Aðalatriðið er hins vegar, hvað er það sem getur gert alla matarkúra árangursríka?
Leyndarmálið við að viðhalda góðum matarvenjum er ekki hvað þú átt að gera heldur hver þú ert verandi á meðan þú gerir það. Ertu meðvituð eða meðvitaður um það, þegar þú matast. Þú veist hvað á að gera, en hefur kannski ekki fundið þinn háttinn á að “vera”. Hér er það sem lífsspeki Fisksins kemur að gagni.
Það sem við köllum að borða sér til huggunar er í raun að borða ómeðvitað. Það er ólíklegt að þú borðir til að hugga þig ef þú ert fullkomlega „til staðar“ fyrir þig sjálfa eða sjálfan. Ójafnvægi getur orðið ef þú borðar í núinu en ert með hugann í fortíðinni eða framtíðinni.
Fiskurinn kennir þér að velja og vera til staðar. Fiskur hjálpar þér til að ná árangri í öllu mögulegu, t.d. að viðhalda kjörþyngd. Það er mikilvægast að hver og einn vinni með lífsspeki Fisksins á eigin forsendum. Fiskurinn er hvorki boð né bönn, hann er veganesti sem endist lengur en þú heldur, já alla ævi.
Gerðu svo vel að hafa samband við undirritaða ef þú hefur spurningar um þessa grein eða annað varðandi Fiskinn.
Sigríður Ágústa Ásgrímsdóttir,
Fisksölukona.
info@vtlausn.is
www.vtlausn.is
Hægt verður að kaupa´bókina í vefverslun www.velgengni.is sem verður opnuð í næstu viku, einnig hægt að panta á min@velgengni.is
Kostar 1.590 kr.