Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Bil milli hugsana og athafna

Einn streituvaldur sem fáir taka eftir er bilið sem myndast milli hugsana og athafna. Því meira bil sem er á milli þess sem manneskja hugsar, segir og gerir, því meiri verður streitan. Í öllum menningarsamfélögum er það litið hornauga þegar mikið bil myndast á milli þess sem manneskja segir og gerir. Slíkt ósamræmi (í daglegu tali nefnt lygar eða að lofa upp í ermina á sér) fer ekki aðeins í taugarnar á þeim sem fyrir því verða, heldur einnig þeim sem skapar ósamræmið. Hver manneskja er sinn eigin versti og harðasti dómari. Því meira bil sem er á milli þess sem hún hugsar og þess sem hún gerir, því meiri streita. Manneskja sem hugsar: „Ég verð að fara að hreyfa mig,“ en gerir það ekki er óafvitandi að skapa streitu í eigin lífi. Þar af leiðandi getur verið streitulosandi að iðka heilindi í öllum samskiptum við sjálfan sig og aðra, þ.e minnka bilið milli hugsana, orða og athafna, með því að standa við það sem maður hugsar og/eða draga úr óraunhæfum væntingum.

Úr bókinni „Þú ert það sem þú hugsar“ eftir Guðjón Bergmann, hægt er að panta bókina hér með því að senda okkur pöntun á min@velgengni.is.  Verð til notenda velgengni.is er einungis 1.890 kr.
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband