Ef þú vilt finna afsökun þá finnur þú hana .
- Hefurðu engan tíma ??? - Byrjarðu eftir helgi ?? -
Það er eitt sem ég hef heyrt nóg af og það eru afsakanir . Hverjar sem ástæðurnar eru að baki afsökunum þá þarf að virða þær upp að vissu marki, ef fólk kemst ekki frá í ræktina á einhverjum tilsettum tíma er það ekki þar með sagt að það þurfi alltaf að láta æfinguna detta upp fyrir þann daginn þegar maður getur komist frá seinna um daginn. ..... Förum aðeins yfir þetta ......
Það er alveg staðreynd að margir eru í mjög krefjandi starfi og eru mikið bundnir á fundum og þess háttar og síðan þarf að sinna fjölskyldunni. Sumir lenda í því að þeir komast ekki til æfinga sama hversu mikið þeir vilja það og reyna , stundum eru aðstæður þannig og það kallast “löglegar” afsakanir. Svo gerist eitt annað sem flestir beila á, það er að þeir eru að ljúka vinnudegi og eru búnir að koma sér inn rútínu að vera komnir heim á einhverjum ákveðnum tíma til fjölskyldu og þegar fólk dregst í vinnunni eins og vill verða þá sér fólk fram á það að það nái ekki nema 30 mínútna æfingu og hugsar með sér að það sé ekki þess virði að taka 30 mínútna æfingu, en það er rangt , það er þess virði. Ég hef sett upp árifaríkar æfingaáætlanir fyrir önnum kafið fólk sem miðast einmitt við 30 mínútur . Og það er einmitt lausnin á þessu vandamáli það er að fara eftir prógrami sem er stílað inn á það að æfa í 25-30 mín sama hversu grunnhyggið það kann að hljóma fyrir suma en það hefur meiri áhrifavirkni en þú hefðir ímyndað þér! Ef þú hefur auka tíma þá bætirðu einfaldlega við æfinguna það er ekki flóknara en svo.
Smá sjálfspróf til ykkar sem hafið engan tíma
- Hversu mörgum klukkustundum eyðir þú fyrir framan tölvuna eða imbann á sólarhring ? (væri ekki gáfulegra að taka 3 til 4 tíma á viku af þessum tíma til æfinga?)
- Gætir þú mögulega vaknað fyrr og æft fyrir vinnu ? (Þá verður dagurinn miklu betri og þú kemur meiru í verk)
- Gætir þú komist frá í hadeginu ?(Á æfingu)
- Númer hvað er HEILSAN í forgangsröðinni hjá þér ????
- Hefurðu VIRKILEGA ENGANN TÍMA?
.
Kveðja
Björn Þór Sigurbjörnsson
Einkaþjálfari / næringaráðgjafi
bjorn@body.is
www.body.is