Hvað ertu að borða?
Mig langaði svona í gamni mínu að setja fram nokkur dæmi um hvað nokkrar vinsælar fæður innihalda mikla orku, sumt af þessu er virkilega sláandi . Ef það á að fara skera niður fyrir sumarið þá er t.d. æskileg kaloríuneysla kvenna í megrun 1200 – 1600 kaloríur og æskileg kaloríuneysla karla 1500 - 2000 kkal pr/dag skv manneldismarkmiðum.
3 Pitzzusneiðar ca 280 gr = 680 kaloríur þar af eru 296 kal úr fitu
Rækjusamloka = 600 kkal þar af 360 úr fitu
Súkkulaðikaka 1 sneið = 342 kkal þar af 123 kkal úr fitu
Bjór ½ l. = 255 kkal
Pulsa með öllu = 450 kkal þar af eru 250 kkal úr fitu
Coca Cola ½ l. = 227 kkal þar af eru 227 kkal úr sykri
Sérbakað vínarbrauð = 555 kkal þar af 290 kkal úr fitu
Kleina 1 stykki = 227 kal þar af 106 kal úr fitu
Rjómaís 300 gr = 716 kal þar af 382 kal úr fitu ( ath engin sósa )
Kjúklingamáltíð á KFC ( 3 bitar, franskar, kokteils ) 1302 kal þar af 701 kal úr fitu
Hamborgaramáltíð ( franskar, kokteils ) 1220 kal þar af 840 kal úr fitu
Mars súkkulaði 1 lítið = 284 kal þar af 170 úr fitu
Eins og sést þá eru þetta engar smá kaloríu-bombur og það þarf ekki nema eina hamborgaramáltíð til að vera kominn upp í dagsþörfina hjá konum og þá á eftir að bæta drykknum við. Ef við bætum við ½ l af kóki við máltíðina erum við komin í 1447 kaloríur, ef við myndum svo slysast til að bæta við einu mars súkkulaði í eftirrétt þá erum við komin í 1800 kkal og mjög vænn hluti af af þessum 1800 kkal eru úr fitu eða um rétt rúmar 1000 kaloríur! Við skulum átta okkur á því að til að losna við 1 kg af fitu þarf að brenna 9000 hitaeiningum umfram það sem við borðum takk fyrir.
Við skulum hugsa okkur tvisvar um áður en við slengjum í okkur svona mat trekk í trekk.
Bestu kveðjur
Bjöddi
bjorn@body.is
www.body.is mun opna innan skamms