Innskráning Nýskráning

Það kostar ekkért að vera notandi

Draumaborðið

Heilari.is

Að ná árangri í ræktinni

Til þess að ná árangri og halda sig við efnið þarf mótiverandi þætti sem minna okkur á hið endanlega takmark , það er sama hvort það er í ræktinni eða annarsstaðar í lífinu þú þarft að sjá hið endanlega takmark fyrir þér og þú þarft að sjá þig sjálfan á áfangastaðnum líka . Ef þú setur þér markmið að spara til þess að komast til útlanda þá eru litlu hlutirnir sem skipta máli og þú verður meðvitaðri um að þú sért ekki að eyða peningum í algjöran óþarfa eins og þú kannski gerðir áður , þetta er hægt að skalal skammtímamarkmiðin í átt að langtímamarkmiðinu sem er sólarlandaferð til Spánar . Þetta er eins með æfingarnar og matarræðið, molar gera brauð !

Þið vitið að þegar maður sér myndir og  eitthvað sem minnir mann á einhvern hlut sem manni þykir vænt um mótiverast maður og maður fyllist meiri móð , það er akkurat það sem þið ættuð að gera . Hvort sem það er að setja mynd af Jane Fonda eða einhverjum öðrum kroppi á ísskápinn þá er það verkfæri til að halda áfram ferðinni.

En markmiðin verða að vera einföld , tímasett og raunhæf svo manni fallist ekki hendur og verði þar með ósátt/ur við sjálfa/n sig og skaði líkamlega og andlega heilsu.

Hérna er form sem þið getið fyllt út , haft á náttborðinu , á borðinu hjá ykkur fyrir framan tölvuna heima og í vinnunni og á ÍSSKÁPNUM ;-)

Skammtímamarkmiðið mitt er :

 

- Hversu mikla þyngd vil ég losna við á viku ?
- Hversu oft þarf ég að æfa í viku ?
- Hverju þarf ég að breyta í matarræðinu hjá mér ?


Langtímamarkmið mitt er :

- Hversu mörg kilo ætla ég að losna við fram að xxxx-xx/xx (dagsetning)
- Hvernig ætla ég að framkvæma það ?
- Hversu oft í viku þarf ég að æfa ?
- Þarf ég á utanaðkomandi hjálp að halda ?
- Hvað fæ ég í staðinn (lofaðu sjálfum þér verðlaunum ef árangurinn næst)


Ég Lofa að leggja mig alla/n fram við að ná markmiðum mínum og ætla ekki að hætta þó ég misstígi mig á leiðinni. Ég ætla vinna að þessu verkefni mínu af öllu mínu hjarta því þannig næst árangurinn og betri heilsa / betra líf .

Nafn : ……………………………………………. Dags : ……./ ……../……….


Kveðja Bjöddi einkaþjálfari bjorn@body.is  / body.is
 


Fjármálaráðgjöf



© Velgengni.is - Síðumúla 35 - 108 Reykjavík - Um Velgengni.is - Hafa Samband